Fótbolti

Var það svo bara ekkert gott fyrir Arsenal að vinna loksins riðilinn í Meistaradeildinni?

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Liðsmenn Arsenal fagna í gær.
Liðsmenn Arsenal fagna í gær. Vísir/Getty
Arsenal sýndi Birki Bjarnasyni og félögum hans í svissneska meistaraliðinu Basel enska miskunn í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í gærkvöldi. Skytturnar afgreiddu sitt verkefni með stæl á útivelli og unnu, 4-1.

Lukas Pérez skoraði þrennu og Alex Iwobi eitt áður en Seydou Doumbia minnkaði muninn fyrir Basel. Meira um leikinn og öll mörkin má sjá með því að smella hér.

Arsenal gerði gott betur en að vinna leikinn í gærkvöldi því í fyrsta sinn í fjögur ár tókst lærisveinum Arsene Wenger að vinna sinn riðil. Það hafðist með hjálp Ludogorets Razgrad sem sótti gott stig til Parísar og gerði 2-2 jafntefli við Paris Saint-Germain.

Arsenal hefur farið flatt á því að lenda í öðru sæti í sínum riðli undanfarin ár í Meistaradeildinni og mæta því liði sem hafnaði í fyrsta sæti sínum riðli í 16 liða úrslitunum. Skytturnar mættu Barcelona í fyrra og töpuðu samanlagt, 5-1, en árið áður tapaði liðið fyrir Monaco og þar áður tvisvar í röð fyrir Bayern München.

Skytturnar hafa aðeins einu sinni á síðustu sex tímabilum hafnað í fyrsta sæti síns riðils en það var leiktíðina 2011-2012. Þá mætti Arsenal AC Milan í 16 liða úrslitum og tapaði samanlagt, 4-3, en Arsenal komst síðast í átta liða úrslitin tímabilið 2009-2010 þegar það hafnaði í fyrsta sæti sínum riðli og lagði Porto í 16 liða úrslitum.

Nú loksins tókst Arsenal aftur að vinna sinn riðil en spurningin er hvort það hafi verið gott fyrir strákana hans Wengers. Meistaradeildin hefur nefnilega verið svolítið skrýtin og skemmtileg í ár og eru risar sem hafna í öðru sæti sinna riðla. Lið sem Arsenal getur mætt.

Eftir fimmtu umferðina og svo fyrri leikina í lokaumferðinni í gær er ljóst að Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain og Manchester City hafna bæði í öðru sæti sinna riðla bara til að gefa dæmi um styrkleikann. Arsenal getur þó mætt hvorugu liðinu í 16 liða úrslitum.

Arsenal getur þó fengið mjög erfiðan andstæðing því Þýskalandsmeistarar Bayern München höfnuðu í öðru sæti síns riðils á eftir Atlético Madríd og þá verður annað hvort Real Madrid eða Borussia Dortmund í öðru sæti í þeirra riðli.

Svo getur einnig farið í kvöld að Ítalíumeistarar síðustu fjögurra ára, Juventus, hafni í öðru sæti í sínum riðli í kvöld sem þýðir að Arsenal gæti mætt gömlu konunni í 16 liða úrslitum.

Liðin sem eru búin að tryggja sér efsta sætið í sínum riðlum eru Arsenal, Napoli, Barcelona, Atlético, Monaco og Leicester.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×