Sport

Var með fullt af litlum myndum af sjálfum sér á skónum sínum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jay Ajayi.
Jay Ajayi. Vísir/Getty
Leikmenn NFL-deildarinnar spila margir í sérhönnuðum skóm í leikjum sínum og sumir þeirra eru afar litríkir.

Ein stjarna Philadelphia Eagles liðsins gekk einu skrefi lengra við hönnunina á skónum sínum fyrir leikinn sinn um helgina.

Hér erum við að tala um hlauparann Jay Ajayi sem er nýkominn til Philadelphia Eagles frá Miami Dolphins þar sem honum var svo gott sem hent út eftir ósætti við þjálfarann.

Jay Ajayi hefur byrjað mjög vel með liði Philadelphia Eagles og er greinilega með sjálfstraustið í botni. Eagles liðið er líka með besta árangurinn í deildinni og líklegt til  afreka á leiktíðinni.

Ajayi mætti nefnilega í leikinn í nótt en það var lokaleikur dagsins, svokallaður Sunnudagskvöldsleikur,  „Sunday Night Football,“ sem er vanalega sá leikur sem fær hvað mesta áhorfið í hverri viku.

Jay Ajayi vissi því að augu margra væri á leiknum og kappinn bauð því upp á mjög sérstaka skó. Hann mætti í skóm sem voru með fullt af litlum myndum af honum sjálfum. Þetta voru reyndar ekki ljósmyndir heldur svokölluð tjámerki, „emoji“ en Jay Ajayi var líka búinn að láta teikna upp tjámerki af sjálfum sér.

Jay Ajayi leið líka vel í skónum og náði meðal annars þessu frábæra hlaupi í gegnum vörn Dallas Cowboys.







Það má síðan sjá alla dýrðina á þessum myndum á Twitter síðu BBC sem og fleiri myndir af skónum hans á hans eigin Twitter-síðu.







NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×