Skoðun

Var hrunið stjórnar­skránni að kenna?

Hjörtur Hjartarson skrifar

Nýja stjórnarskráin, sem lá fyrir Alþingi fullbúin undir lok síðasta kjörtímabils, er enn á ný í sviðsljósinu. Tilraunin til að þegja hana í hel mistókst. Því heyrist aftur á ný þrástefið – alltaf án rökstuðnings – um að hrunið hafi ekki verið stjórnarskránni að kenna. Sú fullyrðing er rétt, en aðeins að því leyti að ábyrgðinni á hruninu verður ekki komið yfir á stjórnarskrána. Við vitum nokkurn veginn hvar ábyrgðin liggur, a.m.k. þau okkar sem muna eitthvað úr Rannsóknarskýrslu Alþingis um bankahrunið. Nýlegar fréttir af framgöngu fyrrverandi seðlabankastjóra, Davíðs Oddssonar, skömmu fyrir hrun gefa líka vísbendingar.



Örstutt upptalning varpar ljósi á málið: Formenn tveggja stjórnmálaflokka skiptu á milli sín bankakerfi þjóðarinnar og afhentu vildarvinum flokkanna. Tæpum sex árum síðar hrundi fjármálakerfið undan spillingunni með brauki og bramli. Líf tugþúsunda gekk úr skorðum. Tveir flokksformenn, áðurnefndir, lögðu nafn Íslands við ólöglegt árásarstríð á hendur öðru ríki, og þurftu hvorki að tala við kóng né prest. Landsmenn búa við óréttlátt kosningakerfi sem þeir hafa hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu, en því er ekki breytt vegna þess að stjórnmálaflokkarnir ætla sér viðhalda óréttlætinu. Þjóðin má una við óréttláta skiptingu arðs af sinni helstu auðlind í áratugi þótt milli 80 og 90% landsmanna séu því andvíg.



Jarðvegur ofríkis

Þetta fengist staðist nema í skjóli þess að við búum við úrelta og ólýðræðislega stjórnarskrá. Stjórnarskrá sem er jarðvegur ofríkis og sérhagsmunagæslu örfárra og tryggir um leið valdaleysi almennings.



Stjórnmálastéttin hét þjóðinni því árið 1944 að hún myndi semja sér sína eigin stjórnarskrá um leið og sjálfstæðismálið væri afgreitt. Það var svikið í 70 ár. Í Kastljósi Sjónvarpsins þann 25. nóvember 2010 sagði Eiríkur Tómasson, þá prófessor í stjórnskipunarrétti og nú hæstaréttardómari, um tregðuna til að standa við fyrirheitið frá 1944:

„Valdið hefur safnast á hendur ríkisstjórnarinnar eða ráðherranna, og fyrst og fremst oddvita stjórnarflokkanna ... Stjórnmálaflokkarnir byggja völd sín á þessum miklu völdum. ... Stjórnmálamenn hafa einhverra hluta vegna, ég held af ásettu ráði, ekki viljað breyta þessu.“



Það er eðlilegt að mesti fúinn í hinu gamalgróna valdakerfi landsins skuli standa gegn nýju stjórnarskránni. En það er of langt gengið að virða ekki vilja kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá. Afdráttarlaust. Slíkt gerist ekki í lýðræðisríki. Þær breytingar sem ný stjórnarskrá hefur í för með sér eru auk þess lífsnauðsynlegar íslensku samfélagi.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×