Sport

Var hreinlega sleginn út úr hringnum í síðasta bardaganum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bernard Hopkins á leið út úr hringnum.
Bernard Hopkins á leið út úr hringnum. Vísir/Getty
Bernard Hopkins dreymdi um að vinna síðasta boxbardagann sinn um helgina en annað kom á daginn þegar andstæðingurinn hans náði höggi sem endaði bardagann og ferilinn á afar vandræðalegan hátt.

Bernard Hopkins er margfaldur heimsmeistari sem á að baki 28 ára feril í boxinu en hann heldur upp á 52 ára afmælið sitt í næsta mánuði. Þetta var 67 bardagann hans á ferlinum en Hopkins endar ferilinn með 55 sigra og 8 töp.

Lokabardaginn var á móti Joe Smith Jr. í hinu goðsagnarkennda íþróttahúsi The Forum í Inglewood í Kalíforntíu og fór fram um helgina.

Þegar Bernard Hopkins hóf ferillinn sinn þá var Ronald Reagan enn forseti Bandaríkjanna og andstæðingur hans, Joe Smith Jr., ekki einu sinni fæddur.

Bernard Hopkins stóð sig ágætlega fyrstu sjö loturnar en í þeirri áttundu náði fyrrnefndur Joe Smith Jr. góðri sókn sem endaði á vandræðalegan hátt fyrir gamla manninn.

Joe Smith Jr. króaði Hopkins af í horninu og náði fimm góðum höggum sem urðu til þess að Hopkins hreinlega datt út úr hringnum.

Hopkins tókst ekki að komast aftur inn í hringinn áður en dómarinn taldi upp á tuttugu. Hann tapaði því bardaganum á tæknilegu rothöggi.

Hopkins datt á höfuðið en stoltið var eitthvað af flækjast fyrir honum. Hopkins hélt því fram að honum hefði verið ýtt út hringnum en sjónvarpsupptökurnar sýndu annað. Hann sagði ennfremur að tognaður ökkli hafi komið í veg fyrir að hann héldi bardaganum áfram.

Hopkins tapaði bardaganum en fékk þó miklu meira fyrir hann en Joe Smith. Á meðan Smith fékk „aðeins“ 140 þúsund dollara, sextán milljónir í íslenskum krónum, þá fékk Hopkins 800 þúsund dollara eða 91 milljón íslenskra króna.

Bernard Hopkins vann sjálfur 32 bardaga á rothöggi en þetta var í fyrsta og eina skiptið sem hann tapaði á rothöggi.

Vísir/Getty
Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×