Var grimmari en orđ fá lýst

Fréttablađiđ Erlent 09. september 2010 04:00
Natascha Kampusch segir nú sögu sína í viđtölum og ćvisögu, sem brátt verđur kvikmynduđ. nordicphotos/AFP
Natascha Kampusch segir nú sögu sína í viđtölum og ćvisögu, sem brátt verđur kvikmynduđ. nordicphotos/AFP
Ég tel núna að Wolfgang Priklopil hafi, með því að fremja hræðilegan glæp, viljað búa sér til ekkert annað en lítinn fullkominn heim fyrir sjálfan sig með manneskju sem gæti verið þarna bara fyrir hann," skrifar Natascha Kampusch í ævisögu sinni, sem þessa dagana er að koma út í Austurríki.
Ævisagan nefnist „3.096 dagar" og þar lýsir hún reynslu sinni af Priklopil, sem rændi henni úti á götu í Vínarborg þegar hún var tíu ára og hélt henni fanginni í litlum klefa á heimili sínu í átta og hálft ár. Árið 2006 tókst henni að flýja og sama dag svipti hann sig lífi.

„Á margan hátt var mannræninginn skepna og grimmari en orð fá lýst," skrifar hún. „Stundum barði hann mig svo lengi að mér fannst barsmíðarnar standa yfir klukkustundum saman." Stundum hafi hann ekki bara notað hendurnar, heldur garðklippur, kúbein og sementspoka.
Hann lét hana svelta lengi, sagði hana vera of feita, en síðar hafi hún áttað sig á því að hann hafi með þessu dregið úr henni mátt svo hún ætti erfiðara með að flýja eða sýna mótspyrnu.

Hún segir hann hafa dáð Adolf Hitler og lagt að henni að lesa bók Hitlers, Mein Kampf. Hann hafi lagt alla áherslu á að hún yrði honum undirgefin. „Þú átt enga fjölskyldu lengur. Ég er faðir þinn, móðir þín, amma þín og systur þínar. Ég er þér allt," segir hún hann hafa sagt. „Ég hef skapað þig," sagði hann líka.

Hún segist þó alla tíð hafa neitað að krjúpa fyrir framan hann, þótt hann hafi aftur og aftur heimtað það af henni. Hann hafi neytt hana til þess að ganga um hálfnakta bæði í húsinu og úti í garði. Það hafi bæði verið gert til að niðurlægja hana og til þess að koma í veg fyrir flótta. „Hann vissi sem var að ég myndi ekki þora að flýja hálfnakin."

Hún segir hvergi frá nauðgunum, en tekur þó fram að hún vilji halda því versta eftir fyrir sjálfa sig. Fólk viti nú þegar of mikið. Eftir fjórtán ára aldur lét hann hana stundum sofa við hliðina á sér í rúminu uppi í íbúðinni, hlekkjaða við hann með handjárnum. Ekki hafi hann þó reynt að nauðga henni. „Maðurinn sem barði mig, lokaði mig niðri í kjallara og svelti mig, vildi bara hafa einhvern til að hjúfra sig upp að," segir hún.

Hún hefur í viðtölum vegna útkomu bókarinnar sagt einna erfiðast að útskýra fyrir fólki að stundum hafi hún þrátt fyrir allt átt góðar stundir með kvalara sínum. Hann var eini félagsskapurinn sem hún átti kost á allan þennan tíma. Hún hafi þó haft betur á endanum og aldrei gerst honum undirgefin eins og hann vildi.

„Honum mistókst," segir hún í einu viðtalinu. „Það er ekki hægt að stjórna neinum algerlega, því ef maður reynir það þá verður sá sem reynt er að stjórna sá sem stjórnar – því athyglin er öll á honum."

gudsteinn@frettabladid.is

Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 13. feb. 2012 03:13

Vega-flaug á loft í fyrsta sinn

Eldflaug af tegundinni Vega verđur skotiđ á loft í fyrsta sinn, rétt fyrir hádegi í dag. G...  

Meira
Erlent 13. feb. 2012 03:13

Litlar líkur á ósigri forsetans

Ekki er mikilla tíđinda ađ vćnta úr forsetakosningunum sem fóru fram í Túrkmenistan í gćr....  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 22:00

Trylltur mađur olli nćstum flugslysi

Brasilísk farţegaţota neyddist til ţess ađ lenda eftir ađ einn farţegi trylltist og réđist...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 23:29

Listamađurinn fékk sjö verđlaun

Franska myndin Listamađurinn fékk flest verđlaun á Bafta hátíđinni í kvöld, eđa sjö talsin...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 21:00

Grammy-verđlaunin haldin í skugga andláts Whitney Houston

Grammy verđaunahátíđin verđur haldin í kvöld í skugga sviplegs fráfalls söngdívunnar Whitn...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 17:51

Fimm ára stúlku bjargađ úr snjóflóđi - lá grafin í tíu klukkustundir

Fimm ára gamalli stúlku var bjargađ eftir ađ hún lenti í snjóflóđi ásamt fjölskyldu sinni ...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 15:51

Átta handteknir fyrir ađ slátra villtum dýrum

Lögreglan í Bangkok í Tćlandi handtók átta manns fyrir ađ slátra villtum dýrum. Í raun var...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 15:29

Ađstođarmađur forseta Kongó látinn - fjármálaráđherrann slasađur

Ađstođarmađur forseta Kongó, Augustin Katumba Mwanke, lést ţegar einkaflugvél sem hann var...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 12:15

Kafteinn klúđur: Myndband sýnir ađgerđarleysi skipstjórans

Myndband sem sýnir viđbrögđ skipstjóra skemmtiferđaskipsins Costa Concordia, sem strandađi...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 10:15

Romney sigrađi í Maine fylki

Mitt Romney, sigrađi í forkosningu repúblikanaflokksins í Maine fylki í Bandaríkjunum í gć...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 10:03

Grunur leikur á ađ Whitney hafi drukknađ í bađkari

Grunur leikur á ađ söngdívan Whitney Houston hafi drukknađ í bađkari á hóteli sínu ţar sem...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 09:52

Fannst látin á hótelherbergi

Bandaríska söng- og leikkonan Whitney Houston er látin, 48 ára ađ aldri. Hún fannst látin ...  

Meira
Erlent 12. feb. 2012 03:13

Whitney Houston látin

Söngkonan Whitney Houston er látin, 48 ára ađ aldri. Talskona hennar stađfestir ţetta í sa...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Erlent / Var grimmari en orđ fá lýst