Lífið

Var búið að dreyma um djúsí varir mjög lengi og fékk þann draum uppfylltan

Ellý Ármanns skrifar
Meðfylgjandi má sjá mynd sem tekin var af Örnu Báru Karlsdóttur fá sér gel í varirnar fyrir sjónvarpsþátt Ásdísar Ránar sem hefst á Stöð 3 í byrjun maí. Við spurðum Ásdísi um þáttagerðina og varaaðgerðina sem Arna Bára fór í.

„Tökurnar hjá mér eru á fullu núna og ég er einmitt á leiðinni til London í tvær spennandi myndatökur fyrir GQ og Top Gear magasín þar sem mér verður fylgt eftir í öllu prógramminu. Það verður skemmtilegt að fá að sýna frá svona glæsilegum tökum,“ segir Ásdís.

Arna Bára fékk gel í varirnar.
Fékk sér gel í varirnar í fyrsta skipti 

„Í „Beauty-horninu“ í þættinum fáum við svo að skyggnast bak við tjöldin í heimi fegurðarinnar og einmitt Í síðustu viku vorum við svo heppin að fá að fylgja Örnu Báru eftir þegar hún lét setja gel í varirnar á sér í fyrsta skipti hjá Ágústi Birgissyni lýtalækni. Arna er í óða önn að gera sig til fyrir keppnina „The Bikini Model Search“ sem er á vegum Playboy en keppnin fer fram í Cancun í Mexíkó  í lok mánaðarins. Sigurvegarinn í þeirri keppni fær að vera „Playmate“ eða leikfélagi og fær 50.000 dollara ásamt öðrum glæsilegum vinningum í verðlaun,“ segir Ásdís.

„Örnu var búið að dreyma um djúsí varir mjög lengi og fékk þann draum uppfylltan. Ég kem til með að sýna allt í þáttunum „Heimur Ísdrottningarinnar“  sem hefst á Stöð 3 í byrjun maí,“ segir hún áður en kvatt er.


Tengdar fréttir

Biður fólk að kjósa sig í Playboykeppni

Arna Bára Karlsdóttir, hárgreiðslukona vonast eftir að sigra forkeppni sem fram fer á internetinu svo hún komist í Playboykeppni í Mexíkó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×