Fótbolti

Var atvinnumaður í einn dag | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hinn átján ára Xander Bailey fékk ósk sína uppfyllta og tók þátt í æfingaleik Seattle Sounders gegn Tottenham.

Bailey þjáist af sjúkdómi sem nefnist Cystic Fibrosis á ensku og er meðfæddur arfgengur sjúkdómur sem veldur því að útkirtlar starfa ekki eðlilega.

Með hjálp „Make a Wish“ samtakanna fékk Bailey draum sinn uppfylltan og fékk bæði að æfa og spila með MLS-liðinu Seattle Sounders um síðustu helgi.

55 þúsund áhorfendur fögnuðu honum vel þegar hann fékk að taka miðju og skjóta að marki í upphafi æfingaleiks Seattle gegn Tottenham, líkt og sést í meðfylgjandi myndbandi.

Hér má finna nánari upplýsingar um CF-sjúkdóminn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×