Handbolti

Vanvirðingin skein af Mikkel Hansen þegar Guðmundur tók leikhlé

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mikkel Hansen og Guðmundur Guðmundsson.
Mikkel Hansen og Guðmundur Guðmundsson. Vísir/Samsett/Getty, AFP og EPA
Handboltaspekingurinn Ásgeir Jónsson spjallaði um frammistöðu Dana og Þjóðverja á HM í Frakklandi í Akraborginni en bæði landsliðin féllu úr leik í sextán liða úrslitum.

„Það vantaði eitthvað upp á andlegu hliðina hjá Dönum og ég held að allir þeir sem horfðu á leikinn hafi séð það,“ segir Ásgeir Jónsson.

„Ungverjarnir, sem eru vissulega með gott lið, voru að galopna dönsku vörnina og þá sérstaklega undir lokin. Það var bara með ólíkindum,“ segir Ásgeir.

„Maður fær það ekki á tilfinninguna að dönsku leikmennirnir væru ekki að leggja sig fram heldur fer það ekki á milli mála þegar þú sérð hvernig Mikkel Hansen ber sig inn á vellinum,“ segir Ásgeir. Hansen fór mikinn framan af leik en var nánast ósýnilegur í seinni hálfleiknum.

„Hann er frábær handboltamaður en við vitum að hann og Guðmundur hafa eldað grátt silfur saman. Ég hef í það minnsta heyrt að Hansen hafi verið einn af þessum leikmönnum sem sátu þessa fundi á Ólympíuleikunum og öll þessi undarlega sena í kringum það. Vanvirðing sem skín af honum þegar Guðmundur er að taka leikhlé. Það er ekki hægt að líta framhjá því,“ segir Ásgeir.

„Það sést mjög skýrt í þessum leik eins og Logi Geirs benti á í HM-stofunni, þegar Mikkel fórnar höndum þegar Guðmundur tekur leikhlé undir restina. Eins hvernig hann spilar síðustu tíu mínútur leiksins. Hann hreyfir sig varla í sókninni og hvað þá í vörninni. Hann er frábær leikmaður og getur nánast skorað þegar hann vill,“ segir Ásgeir en honum er tíðrætt um leikhléið á lokin.

„Hollingin á liðinu þegar Guðmundur tekur þetta leikhlé í restina. Það leikur fýlan af mönnum sem eru ríkjandi Ólympíumeistarar og á stórmóti að berjast fyrir lífi sínu. Það var ekki löngun að finna í einu andliti í hópnum,“ sagði Ásgeir.

„Ef þér er það illa við þjálfarann að þetta er lendingin á ögurstundu þá áttu bara að koma hreint fram og segja; Ég ætlað að afþakka þetta landsliðssæti núna. Þú getur ekki boðið stuðningsmönnunum. þjálfaranum og öðrum í liðinu upp á það að taka þátt ef þetta er nálgunin á verkefnið. Mér finnst það fyrir neðan allar hellur að fagmenn og landsliðsmenn láti svona,“ sagði Ásgeir.

Er það þá kannski eina leiðin í stöðunni fyrir Guðmund Guðmundsson að hætta með landsliðið strax í stað þess að klára undankeppni EM í vor og sumar.

„Mögulega væri það best fyrir Guðmund að hætta núna því það er augljóslega svo mikil kergja í hópnum. Hann virkar samt á mig sem maður sem vill klára það sem hann tekur sér fyrir hendur og prinsipp maður hvað það varðar.,“ segir Ásgeir.

Það má finna allt viðtalið og það sem Ásgeir sagði um Dag Sigurðsson og þýska landsliðið í spilaranum hér fyrir ofan. 


Tengdar fréttir

Gott fyrir Guðmund að hann gat tekið þessa ákvörðun sjálfur

Einn þekktasti íþróttafréttamaður Danmerkur telur að Guðmundur Guðmundsson hafi verið kominn í ómögulega stöðu með danska landsliðinu og að hann hafi ekki átt annan góðan kost en að framlengja ekki samning sinn við danska handknattl

Guðmundur og Danir úr leik á HM

Ungverjaland gerði sér lítið fyrir og sló Ólympíumeistara Danmerkur úr keppni á heimsmeistaramótinu í handbolta í Frakklandi í dag.

Dagur: Sjokk fyrir okkur alla

Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Þýskalands, bar sig vel eftir að hafa óvænt tapað gegn Katar í 16-liða úrslitum á HM. Þetta var síðasti leikur hans með þýska liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×