Heilsa

Vantar þig tónlist í ræktina?

Natalie Gunnarsdóttir eða D.J. Yamaho
Natalie Gunnarsdóttir eða D.J. Yamaho mynd/ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR
Natalie, betur þekkt sem D.J. Yamaho, er einn vinsælasti plötusnúður landsins og spilar reglulega á öllum vinsælustu skemmtistöðum bæjarins. Auk þess er Natalie farin að reyna fyrir sér sem söngkona. „Ég er að læra söng hjá Margréti Pálmadóttur söngkennara og mínum andlega leiðtoga. Steig inn í óttann með sönginn eftir að ég og Addi Intro gerðum lagið „Release me.“ Lagið seldum við í kjölfarið til Nova fyrir sumarherferðina þeirra,“ útskýrir hún. „Í dag er ég að vinna að plötu með frumsömdu efni þar sem ég syng líka.“

Heilsuvísir fékk Natalie til þess að setja saman skemmtilegan lagalista fyrir ræktina, „Ég er svo alltaf á leiðinni að byrja aftur í ræktinni þannig að það var mjög fínt að gera þennan lista með ræktina og tilheyrandi átök í huga. Hver veit nema að ég skelli mér með listann í eyrunum!“

Upphitun

Quadrion-Hey love

Abamadama-Hossa Hossa

Stuð

Candi station-Hallelujah Anyway (Larse Vocal rmx)

Devo-Whip it

Roacford-Cudly Toy

Chaka Khan - I feel for you

Bon Jovi-Living on a Prayer

Kenny logging-Footloose

Ce Ce peniston - Finally

Teygjur

Crystal Waters - Gypsy Woman

Hér er svo linkur á lagalistann á Spotify.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×