Viðskipti innlent

Vantar stefnu gagnvart spillingu

Ingvar Haraldsson skrifar
Félög í Kauphöllinni koma almennt vel út hvað varðar gegnsæi.
Félög í Kauphöllinni koma almennt vel út hvað varðar gegnsæi. fréttablaðið/gva
Félög skráð í Kauphöll Íslands koma flest vel út í rannsókn á gegnsæi samanborið við erlend stórfyrirtæki. Rannsóknin var lokaverkefni Önnu Kristínu Lobers, viðskiptafræðinema við Háskóla Íslands.

Meðaleinkunn íslensku félaganna var 4,4 en í sambærilegri rannsókn Transparency International á gegnsæi hjá 124 alþjóðlegum stórfyrirtækjum fékkst meðaleinkunnin 3,8.

Anna segir að það hafi komið henni skemmtilega á óvart hve vel íslensku félögin komu vel út í alþjóðlegum samanburði. Sérstaklega miðað við hve mikil pressan sé á alþjóðlegum stórfyrirtækjum um gegnsæi í viðskiptaháttum.

Anna kristína Lobers
Anna segir þó að ýmislegt megi bæta hvað varðar gegnsæi hér á landi. Fæst fyrirtæki hafa markað opinbera stefnu gagnvart spillingu, frætt starfsfólk um helstu spillingarhvata eða gefið út hvernig starfsfólk geti bent á spillingu innan fyrirtækis án þess að setja starf sitt í hættu.

Þá hafi fá félaganna markað sér stefnu um hvort veita eigi pólitísk framlög eða upplýsa um hverjir fái slík framlög.

„Hjá þeim félögum sem starfa erlendis vantar upp á að sundurliða fjármálaupplýsingar, t.d. frá hvaða löndum tekjur og gjöld koma,“ bætir Anna við. Sjóvá kemur best út úr rannsókninni og fær einkunnina 7,7. Það er hærri einkunn en gefin var í alþjóðlegu rannsókninni.

Icelandair endaði neðst í íslensku rannsókninni með einkunnina 1,9. Anna segir það helst skýrast af því hve lítið af upplýsingum sé hægt að nálgast um félagið, bæði hvað varðar sundurliðun á fjármálaupplýsingum og hvað varðar stefnu í baráttunni gegn spillingu.

Guðrún Johnsen, leiðbeinandi Önnu, lektor við Háskóla Íslands og stjórnarmaður í Gegnsæi, samtökum gegn spillingu, segir að almennt sé lítil meðvitund um hvað varðar spillingarhættur hér á landi og því sé rannsóknin gott innlegg í þá umræðu.

„Það hefur mjög alvarlegar afleiðingar ef spilling grasserar innan fyrirtækja,“ segir Guðrún enda hafi Íslendingar fengið að kenna á afleiðingum þess síðustu ár. „Það er mjög mikilvægt að stjórnendur fyrirtækja átti sig á mikilvægi þess að sannfæra sparifjáreigendur um að þeir geri allt til að koma í veg fyrir að spilling myndist,“ segir Guðrún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×