Lífið

Vann hug og hjörtu allra í salnum: „Ég elska þessa stelpu“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kathleen Jenkins þykir sigurstrangleg í ár.
Kathleen Jenkins þykir sigurstrangleg í ár. vísir
Kathleen Jenkins vann hug og hjörtu allra í salnum í síðasta þætti Britain´s Got Talent þegar hún tók lagið Wild Horses með Rolling Stones.

Jenkins starfar sem ræstitæknir en draumurinn hennar er að vinna við það að koma fram. Flutningur hennar var mjög tilfinningaþrunginn og sló þögn á salinn. Þegar hún hafði lokið flutningnum stóðu allir dómararnir upp og klöppuðu.

Hún mætti á svæðið með eiginmanni sínum og föður. Báðir áttu þeir erfitt með tilfinningar sínar þegar Jenkins steig á svið og átti hreinlega salinn.

Þennan magnaða flutning má sjá hér að neðan en Simon Cowell sagði meðal annars: „Ég elska þessa stelpu.“

Britain´s Got Talent er á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudagskvöldum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×