Innlent

Vanmáttur gagnvart ofbeldi sem ekki er líkamlegt

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Talskona Stigamóta segir að samtökin ætli á næstunni að leggja sérstaka áherslu á mál þar sem ofbeldi án snertingar kemur við sögu. Viðurkenna þurfi vandann. Verið er að vinna að því að kortleggja hversu margir leita sér hjálpar vegna ofsókna eltihrella hér á landi.

Stígamót settu í vikunni upp upplýsingasíðu fyrir þolendur ofsókna, en hingað til hefur litlar sem engar upplýsingar verið að finna um hvert þolendur slíkra mála geta snúið sér. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir að um falinn vanda sé að ræða.

„Þarna erum við að tala um kynferðislega áreitni, við erum að tala um stafrænt ofbeldi í mörgum myndum, ýmiskonar ofsóknir og umsátur gagnvart fólki. Þetta ofbeldi hefur verið þannig að það eru allir fylltir vanmætti gagnvart því,“ segir Guðrún. 

Stígamót munu á næstunni leggja aukna áherslu á mál af þessum toga. Þá er verið að kortleggja hve margir leita til samtakana vegna áreitis eltihrella.

„Það sem okkur langar að gera er að stofna til vitundarvakningar, bæði til að staðfesta að þetta sé alvarlegt og óásættanlegt, og að það þurfi að bregðast við því,“ segir Guðrún. 

Guðrún segir landslag kynferðisofbeldis vera síbreytilegt. Stafrænt ofbeldi sé til að mynda orðið algengasta birtingarmynd ofbeldis gegn ungmennum. 

„Það þarf auðvitað að laga lagaumhverfið en það eitt og sér er ekki nóg.  Það er til dæmis ekki ásættanlegt að fólk leiti til lögreglunnar og að þar yppi fólk öxlum og segi að ekkert sé hægt að gera. Í þessum málum eru oft til órækar sannanir. Ég veit að lögreglan er líka að taka þetta alvarlega og þar er verið að breyta skipulagi þannig að það sé mannskapur sem að taki á þessum málum. Þetta er eitthvað sem við eigum öll eftir að vinna mikla vinnu með.“


Tengdar fréttir

Ráðþrota eftir áralangar ofsóknir eltihrellis

Íslensk kona, sem segist hafa þurft að búa við ofsóknir og kynferðislegt áreiti eltihrellis í tólf ár, segir að skilgreina þurfi ofbeldi án snertingar sérstaklega í lögum hér á landi. Annars geti lögreglan lítið sem ekkert aðhafst í slíkum málum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×