Matur

Vanillubollakökur með hvítsúkkulaðikremi

Eva Laufey Kjaran skrifar
visir.is/evalaufey

Vanillubollakökur með himnesku kremi

250 g sykur

135 g smjör

2 egg

250 hveiti 

1 1/2 tsk vanilla extract eða vanilludropar

1 tsk. lyftiduft

3 - 4  msk rjómi



Aðferð:

Hitið ofninn í 180°C. Þeytið saman sykur og smjör í tvær mínútur, bætið síðan eggjum saman við, fyrst öðru og svo hinu.

Blandið hveiti og lyftidufti saman í annarri skál og sigtið blönduna 3 - 5 sinnum. Bætið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna í smáum skömmtum ásamt rjóma og hrærið vanillu saman við í lokin.

Skiptið deiginu í pappaform og bakið í 20 mín við 180°C. Látið kökurnar standa í 10 mín áður en kremið er sett á þær. 

Smjörkrem með hvítu súkkulaðikremi

230 g smjör, við stofuhita

500 g flórsykur

2 tsk vanilluextract eða dropar

2 msk rjómi

100 g hvítt súkkulaði

Fersk ber og annað skraut

Aðferð:

Þeytið saman smjör og flórsykur í tvær til þrjár mínútur. Bræðið hvítt súkkulaði yfir vatnsbaði og hellið út í kremið. Bætið rjóma og vanillu saman við í lokin og þeytið kremið áfram í nokkrar mínútur eða þar til kremið verður silkimjúkt.

Kælið kremið í smástund ef það er of lint. Setjið kremið í sprautupoka og sprautið því ofan á kökurnar. Skreytið kökurnar að vild en þær eru sérlega fallegar með ferskum hindberjum. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×