Matur

Vanillu panna cotta

Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson gefur gómsætar uppskriftir á Stöð 2 fram að jólum. Hér er girnilegur eftirréttur fyrir áramótaboðið.

Vanillu panna cotta

200 g rjómi 

100 g sykur 

170 g sýrður rjómi 

150 g mascarpone ostur 

1 vanillustöng 

1 msk. sítrónusafi

2 blöð matarlím

Meðlæti

Jarðaber 

Kampavín



Setjið allt hráefnið saman í skál og bræðið saman yfir vatnsbaði í ca. 10 mín. Setjið matarlímið í bleyti í kalt vatn og látið standa þar í ca 5 mín. Bætið því svo út í blönduna og látið leysast upp. Maukið svo með töfrasprota. Hellið panna cottunni í kampavínsglös og setjið inn í ísskáp og látið standa þar í 2 tíma. Setjið sorbet-inn ofan á panna cottuna og skerið jarðaberin í ca 6 bita og bætið ofan á sorbet-inn og endið á að setja smá kampavín yfir allt saman.

Jarðarberjasorbet 

600 g frosin jarðaber 

175 g sykur 

50 g vatn 

safi úr 1 sítrónu

KitchenAid ísskál



Sjóðið sykur og vatn saman og kælið. Þá eru þið komin með sykur sýróp. Setjið jarðaberin í skál og þýðið þau í vatnsbaði. Hellið jarðaberjunum í blender skál og maukið saman. Sigtið maukið í gegnum fínt sigti og blandið svo sykursýrópinu út í og smakkið til með sítrónusafa. Setjið í ísskál frá KitchenAid (ísvél) og hrærið saman í ca. 20 mín eða þar til sorbet-inn er orðinn ljós á litinn og þykkur. Takið úr skálinni og setjið í dall og inn í frysti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×