Erlent

Vandræðaleg byrjun á kappræðum repúblikana í nótt

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Carson og Trump biðu rólegir eftir að verða kynntir aftur á svið. Kynna þurfti Trump þrisvar á svið.
Carson og Trump biðu rólegir eftir að verða kynntir aftur á svið. Kynna þurfti Trump þrisvar á svið.
Hún var hálf vandræðaleg byrjunin á kappræðum repúblikana fyrir forvalið í New Hampshire í nótt þegar bæði Ben Carson og Donald Trump misstu af því þegar þeir voru kynntir á svið. Þeir þurftu því að hinkra um stund á meðan aðrir frambjóðendur voru kallaðir upp.

Carson virtist ekki hafa heyrt þegar hann var kynntur á svið, en Trump var einfaldlega of seinn.

Donald Trump og Chris Christie virtust hafa staðið sig best í forvalinu í gær og Marco Rubio sig verst. Stjórnmálaskýrendur telja Rubio hafa veikt stöðu sína og segja flest benda til þess að Trump vinni sigur í New Hampshire.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×