Skoðun

Vandræðagangur á interneti

Bjarnveig Eiríksdóttir skrifar
Ég heyrði af því um daginn að ísbúð ein í Reykjavík flokkaði viðskiptavini sína eftir þjóðerni. Þar á bæ væri lagt meira á túristaís en annan ís. Þetta er vonandi flökkusaga. Frásögn af athæfi nokkurra vel þekktra fjölþjóðlegra bílaleigufyrirtækja í Evrópu er ekki flökkusaga. Þau mismuna eftir þjóðerni. Viðskiptavinir þessara fyrirtækja sem ekki verða nafngreind hér munu hafa ítrekað lent í því þegar þeir bóka bílaleigubíl í öðru landi í gegnum internetið að fá ekki jafn hagstætt verð og íbúar í heimaríki bílaleigunnar. Sumar bílaleigur flokka nefnilega viðskiptavini sem panta á netinu eftir IP-tölu eða upplýsingum um heimili. Þessir viðskiptavinir fá sjálfkrafa hærri verð hjá bókunarvél eða geta jafnvel ekki pantað þjónustu. Skiptir ekki máli þótt þeir ætli að nota bifreiðina í viðkomandi ríki þar sem bílaleigan er staðsett.

Sameiginlegur markaður?

Þrátt fyrir sameiginlegan markað og sameiginlegar leikreglur blasa enn hindranir við einstaklingum og fyrirtækjum sem stunda viðskipti milli ríkja í EES. Evrópudómstóllinn er öflugur málsvari neytenda. Vel þekkt er mál Englendinganna sem laumuðust til að kaupa sér afruglara frá Grikklandi til að geta horft á grískar gervihnattarsendingar frá ensku meistaradeildinni en áskriftargjöld í Grikklandi voru lægri en hjá Sky sem hafði einkarétt til sýninga í Bretlandi. Gríska sjónvarpsstöðin og Meistaradeildin fóru í mál við Englendingana. Málið fór í forúrskurð hjá Evrópudómstólnum sem stóð með Englendingunum þar sem áskriftin var til einkanota. Sagði dómstóllinn slíkar hindranir á sölu á afruglurum milli ríkja vera brot á samkeppnisreglum og reglum um þjónustufrelsi. Vegna forúrskurðarins hóf framkvæmdastjórn ESB nýverið rannsókn á dreifingarsamningum bandarískra kvikmyndafyrirtækja við stóru sjónvarpsfyrirtækin í Evrópu. Sagði framkvæmdastjóri samkeppnismála að skoða þurfi hvort þessir dreifingarsamningar hindruðu einstaklinga í að fá aðgang að áskriftarsjónvarpi í öðrum ríkjum og hvort samningarnir sem skipta upp mörkuðum eftir landamærum standist samkeppnisreglur.

Hvað er til ráða?

Fjölmargir neytendur hafa kvartað undan fjölþjóðlegu bílaleigunum. Framkvæmdastjórn ESB hefur sent bílaleigunum bréf og hvatt þær til að breyta þessum viðskiptaháttum þar sem þeir brjóti gegn þjónustutilskipun ESB. Eftirlitsaðilar neytendamála í hverju landi hafa eftirlit með svona viðskiptaháttum. Neytendur sem telja að fyrirtæki í öðru landi hafi brotið á sér geta farið á heimasíðu neytendaeftirlits í EES sem heitir EEC-Net og fundið þarlendan eftirlitsaðila. Sameiginlegur markaður myndast ekki með sameiginlegum reglum einum saman. Neytendur og fyrirtæki þurfa að standa vörð og láta í sér heyra.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×