Formúla 1

Vandi McLaren ekki allur hjá Honda

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Vandoorne ekur McLaren bílnum í Austurríki.
Vandoorne ekur McLaren bílnum í Austurríki. Vísir/Getty
Þróunar- og varaökumaður McLaren, Stoffel Vandoorne segir að til að komast aftur á toppinn þurfi bætingar á öllum sviðum. Skortur á vélarafli sé ekki eini vandinn.

„Það vita allir að það þarf að bæta heildar pakkan og við erum að vinna að miklum uppfærslum sem skila framförum í nánustu framtíð,“ sagði Vandoorne.

Vandoorne fékk tíma við stýrið á McLaren bílnum á æfingum eftir keppnina í Austurríki fyrir 10 dögum síðan. Hann hafði einnig ekið bíl síðasta árs og hann segir liðið á réttri leið til að vinna keppnir.

„Grunnurinn er góður. Ég held að tækifærin séu til staðar í bílnum til að vinna keppnir aftur í framtíðinni. Hvenær það verður vitum við ekki ennþá. Vonandi fyrr en seinna,“ bætti Vandoorne við.

Aðspurður hvort hann sæi fram á að fá tækifæri í Formúlu 1 á næsta ári, jafnvel með McLaren, sagði Vandoorne: „Ég einblíni á GP2 í augnablikinu, ég reyni að vinna þar og enda tímabilið á sömu nótum og það hófst. Augljóslega er það markmið að vera í Formúlu 1 á næsta ári og hefur verið síðan ég var barn, en það er enn full snemmt til að segja til um framtíðina,“ sagði Vandoorne að lokum.

Vandoorne situr á toppi ökumannskeppni GP2 mótaraðarinnar með 155 stig en næstur á eftir honum er Alexander Rossi með 79 stig.


Tengdar fréttir

Nýtt útlit hjá McLaren

McLaren liðið hefur birt myndir af nýju útliti Formúlu 1 bíl sínum. Liðið vonar að nýja útlitið veiti því meðbyrinn sem það vantar.

Button: Vonandi verður Alonso fljótari en ég

Jenson Button ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 lýsti því yfir á blaðamannafundi í dag að hann vonaði að liðsfélagi sinn, Fernando Alonso yrði fljótari en hann um helgina.

Bílskúrinn: Allt markvert frá Austurríki

Nico Rosberg bítur frá sér, nælir í 25 stig og gerir það með glans. Kimi Raikkonen verður undir Fernando Alonso, Williams stelur verðlaunum af Ferrari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×