Enski boltinn

Van Gaal njósnaði um leikmenn United sem voru stundum nálægt uppreisn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Louis van Gaal er að öllum líkindum á útleið og leikmennirnir verða víst fegnir.
Louis van Gaal er að öllum líkindum á útleið og leikmennirnir verða víst fegnir. vísir/getty
Daniel Taylor, aðal fótboltafréttaritari enska blaðsins The Guardian, skrifar magnaðan pistil á heimasíðu Guardian þar sem hann opinberar hvernig tímabilið er búið að vera hjá Manchester United hvað varðar Louis van Gaal og samband hans við leikmenn liðsins. Hann rekur söguna alveg til fyrstu æfingaferðar liðsins undir stjórn Van Gaals.

Áður en Taylor tók við sem yfirmaður fótboltaskrifa hjá Guardian var hann fréttaritari blaðsins í Manchester og er vel tengdur inn í bæði Manchester United og Manchester City.

Svo virðist sem vandræðin hafi byrjað strax í fyrstu æfingaferð Van Gaal sumarið 2014 þegar liðið fór til Bandaríkjanna en innan herbúða Manchester United kenndu leikmennirnir æfingaferðinni um ömurlega byrjun liðsins í deildinni sem var sú versta í 25 ára.

Þeim fannst æfingaferðin frekar líkjast fangabúðum þar sem æft var tvisvar sinnum á dag, margir fundir haldnir og kvöldmaturinn var ekki meira en ristuð brauðsneið. Leikmennirnir voru á fullu frá hálf níu um morguninn og fram til hálf ellefu um kvöldið.

David De Gea er sagður enginn aðdáandi Van Gaals.Vísir/Getty
Hundskammaðir

Hollendingurinn er allt annað en vinsæll hjá flestum leikmönnum liðsins, að því fram kemur í pistli Daniels Taylors, en hugmyndafræði hans og leikskipulag er svo óvinsælt hjá leikmönnunum að nokkrir þeirra hafa kvartað fyrir framan aðra leikmenn í búningsklefanum.

Framkomu Van Gaal við leikmenn United er líkt við gamaldags skólastjóra í Bretlandi og aðferðir hans sagðar hafa nuddað leikmennina eins og sandpappír. Taylor segist hafa heimildir fyrir því að stundum hafi einfaldlega verið stutt í uppreisn hjá leikmönnunum gegn Van Gaal.

Hollenski þjálfarinn er sagður duglegur við að gagnrýna menn og hreinlega hundskamma þá opinberlega fyrir framan aðra menn í klefanum. Það er eitthvað sem fór illa í leikmannahópinn og gekk það svo langt að Wayne Rooney og Michael Carrick fóru á fund með Van Gaal til að ræða þau mál.

Van Gaal fær prik hjá Taylor fyrir að vera alltaf sagður til í að hlusta á leikmennina og hvetja þá til að tala af hreinskilni ef eitthvað er að hjá þeim.

Er Mourinho á leiðinni?vísir/getty
Njósnir

En eftir þennan fund fór Van Gaal að senda leikmönnunum tölvupósta, ekki á allan hópinn heldur á hvern og einn. Í póstunum fór hann yfir mistök og misgjörðir hvers og eins leikmanns og sýndi þeim myndbönd af því sem hann var óánægður með.

Þetta virkaði ekki því á þessum tíma voru leikmennirnir orðnir svo svekktir út í Van Gaal að þeir opnuðu ekki einu sinni póstana. Van Gaal grunaði að þannig væri í pottinn búið þannig hann hengdi sporrekjanda við póstana þannig hann vissi hvort leikmennirnir væru að opna póstinn frá honum og hversu lengi hann var opinn.

„Þetta varð leikur kattarins að músinni,“ skrifar Taylor en leikmennirnir svöruðu þessu bragði Van Gaal með því að opna póstinn í símanum og skilja hann eftir opinn í 20 mínútur á meðan þeir fóru að gera eitthvað annað.

Þrátt fyrir að skila bikarmeistaratitli í hús er fastlega búist við því að Louis van Gaal verði rekinn sem knattspyrnustjóri Manchester United og líklega strax í dag. José Mourinho verður svo ráðinn seinna í vikunni.

Allan pistil Taylors má lesa hér.


Tengdar fréttir

Van Gaal: Þetta er búið

Louis van Gaal, knattspyrnustjóri nýkrýndra bikarmeistara Manchester United, virðist vera meðvitaður um að dagar hans hjá félaginu séu taldir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×