Enski boltinn

Van Gaal: Þeir voru betri en við í fimm mínútur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Van Gaal á bekknum í dag.
Van Gaal á bekknum í dag. vísir/getty
„Við stjórnuðum leikjum í 85 mínútur en við töpuðum leiknum á fimm,“ segir Louis van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, eftir 2-1 tap liðins gegn Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Swansea.

„Við þurfum að getað stjórnað leikjum betur en þetta og þurfum að læra af þessum leik. Til að byrja með þurfum við að skapa okkur fleiri færi og síðan þurfum við einnig smá heppni með okkur.“

Van Gaal segist vera nokkuð ánægður með spilamennsku liðsins.

„Við þurfum samt sem áður að ná í úrslit. Leikmenn mínir voru gríðarlega ákveðnir fyrir þennan leik og ætluðu sér að ná í þrjú stig.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×