Fótbolti

Van Gaal: Börn munu ekki ná að sofna

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Getty
Louis Van Gaal skoraði á hollenska foreldra að leyfa börnum sínum að horfa leikinn gegn Argentínu í kvöld en leikurinn hefst klukkan 10 á hollenskum tíma.

Sigri Hollendingar í kvöld er það annað mótið í röð sem Holland kemst í úrslit Heimsmeistarakeppninnar.

„Ég myndi alltaf leyfa börnunum mínum að vaka eftir þessu þar sem þetta er einstök lífsreynsla. Sjáðu hvaða áhrif fótbolti hefur á heiminn, það ætti öllum að vera leyft að horfa á þetta,“ sagði Van Gaal sem hefur ekki trú á því að börn muni sofna snemma í kvöld.

„Börn munu ekki sofna af kvíða yfir því hvort Holland kemst í úrslitaleikinn eða ekki svo það er alveg eins gott að leyfa þeim að horfa á leikinn og upplifa stemminguna,“ sagði Van Gaal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×