Handbolti

Valsstúlkur komust á toppinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik Selfoss og HK í kvöld.
Úr leik Selfoss og HK í kvöld. mynd/jóhannes ásgeir eiríksson
Valur komst í kvöld í toppsæti Olís-deildar kvenna er liðið vann öruggan sigur á Fjölni.

Valur er með 20 stig, eins og ÍBV, en með betri markatölu. Fram og Grótta eru svo með 19 stig en þau mætast annað kvöld.

ÍR vann sinn annan sigur í vetur er það mætti KA/Þór. ÍR komst þar með upp úr botnsætinu. Afturelding er komið í botnsætið en liðið tapaði gegn Fylki.

Úrslit:

Afturelding-Fylkir  22-31

ÍR-KA/Þór  20-17

Fjölnir-Valur  18-36

Selfoss-HK  24-21

Stjarnan-FH    29-22




Fleiri fréttir

Sjá meira


×