Íslenski boltinn

Valsmenn sömdu við sænska bakvörðinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Billy Velo Berntsson er genginn í raðir Vals og leikur með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.

Billy er hægri bakvörður og fyllir í skarð James Hurst sem yfirgaf herbúðir Valsmanna á dögunum.

Hann er 30 ára gamall og hefur lengst af spilað í heimalandinu en einnig Danmörku og Skotlandi. Hann spilaði með Hammarby til loka tímabilsins í fyrra en samdi í apríl síðastliðnum við neðrideildarlið Rosengård.

Berntsson á að baki fjölda leikja með yngri landsliðum Svíþjóðar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×