Íslenski boltinn

Valsmenn rukka 500 kr. meira á leikdegi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Facebook-síða Vals
Valur tekur á móti FH í 21. umferð Pepsi-deildar karla klukkan 14:00 á sunnudaginn. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið, en FH-ingar eiga í harðri baráttu við Stjörnuna um Íslandsmeistaratitilinn. Valsmenn eiga hins vegar enn góða möguleika á að tryggja sér fjórða sætið og þar með sæti í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Valur er byrjaður að auglýsa leikinn mikilvæga, en á Facebook-síðu félagsins má sjá auglýsingu þar sem fram kemur að forsala miða hefjist í dag.

Jafnframt kemur fram að miðaverð hækki á leikdegi; úr 1500 kr. í 2000 kr. Þessi hækkun vekur nokkra furðu í ljósi þess að aðeins 145 manns létu sjá sig á leik Vals og Þórs í síðustu umferð. Það er því spurning hvort hækkað viðaverð laði fleiri Valsmenn á leikinn á sunnudaginn eða hvort þetta hafi þveröfug áhrif.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×