Íslenski boltinn

Valsmenn Reykjavíkurmeistarar í 22. sinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Reykjavíkurmeistarar Vals.
Reykjavíkurmeistarar Vals. vísir/vilhelm
Valsmenn eru Reykjavíkurmeistarar 2017 eftir 1-0 sigur á Fjölni í úrslitaleik í Egilshöllinni í kvöld.

Eina mark leiksins var sjálfsmark Hans Viktors Guðmundssonar, varnarmanns Fjölnis, á 44. mínútu. Hann stýrði þá boltanum í netið eftir fyrirgjöf Arnars Sveins Geirssonar frá hægri.

Leikurinn var í rólegri kantinum en Valsmenn voru ívið sterkari aðilinn og verðskulduðu sigurinn.

Í uppbótartíma fékk Þórir Guðjónsson, framherji Fjölnis, að líta rauða spjaldið fyrir brot á Bjarna Ólafi Eiríkssyni.

Þetta er í 22. sinn sem Valur verður Reykjavíkurmeistari.

Fjölnir, sem hafði unnið alla leiki sína í mótinu til þessa með markatölunni 11-0, eru eina Reykjavíkurfélagið sem hefur ekki orðið Reykjavíkurmeistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×