Innlent

Valitor varar við svikapóstum

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Fólki er eindregið ráðlagt að opna póstana ekki.
Fólki er eindregið ráðlagt að opna póstana ekki. Vísir/Stefán
Valitor vill vara við svikapóstum sem sendir hafa verið í dag í nafni fyrirtækisins. Fólki er eindregið ráðlagt að opna póstana ekki, smella ekki á hlekkinn sem fylgir með og gefa ekki undir neinum kringumstæðum upp kortaupplýsingar.

Í tilkynningu segir að Valitor biðji aldrei um slíkar upplýsingar í tölvupósti og að best sé að eyða póstinum strax.

Í tilkynningunni segir einnig að Valitor hafi ekki orðið fyrir tölvuárás heldur sé um að ræða svikapósta til almennings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×