Viðskipti innlent

Valitor fær metsekt: Sektað um hálfan milljarð vegna samkeppnislagabrota

ingvar haraldsson skrifar
Viðar Þorkelsson er forstjóri Valitor.
Viðar Þorkelsson er forstjóri Valitor. vísir
Hæstiréttur Íslands hefur hækkað sekt Valitor vegna samkeppnislagabrota úr 400 í 500 milljónir króna. Dómurinn var kveðinn upp fyrr í dag. Sektin er sú hæsta sem lagt hefur verið á íslenskt fyrirtæki vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu, samkvæmt því sem fram kemur á vef Samkeppniseftirlitsins.

Valitor er talið hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust að keppinautum félagsins á markaði fyrir færsluhirðingu. Þá hafi Valitor einnig, brotið gegn tveimur skilyrðum sem félagið hafði skuldbundið sig til að hlíta með sátt við Samkeppniseftirlitið í fyrra máli.

Til rökstuðnings hækkun sekta byggir Hæstiréttur meðal annars á því að brot fyrirtækisins hafi snert allan almenning í landinu, auk þess sem vísað er til þess að fjárhagslegur styrkleiki Valitors og ávinningur af starfseminni á brotatímabilinu hafi verið verulegur, samkvæmt því sem fram kemur á vef Samkeppniseftirlitsins. „Jafnframt er litið til þess að stjórnvaldssekt í fyrra máli hafi ekki skilað þeim árangri að Valitor léti af samkeppnisbrotum.“

Þá ber Valitor að greiða Samkeppniseftirlitinu 4 milljónir króna í málskostnað.

Tildrög dómsins eru þau að í apríl 2013 sektaði Samkeppniseftirlitið Valitor hf. um 500 milljónir króna fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu og brot á skilyrðum fyrri ákvörðunar eftirlitsins. Var félagið talið hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppinautum félagsins á markaði fyrir færsluhirðingu. Háttsemi Valitors var sögð hafa falist í því að fyrirtækið verðlagði þjónustu sína í færsluhirðingu vegna debetkorta undir breytilegum kostnaði.

Með þessari undirverðlagningu var félagið talið líklegra til að fá samninga við söluaðila um færsluhirðingu vegna kreditkorta sem talin er arðsamari þjónusta. Samkeppniseftirlitið taldi umfang undirverðlagningarinnar verulegt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×