Viðskipti innlent

Valið mikill heiður

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ómar Henningsson er einn fárra sem situr í CCIE-ráðinu.
Ómar Henningsson er einn fárra sem situr í CCIE-ráðinu. aðsend mynd
Ómar Henningsson, þjónustustjóri hjá Sensa, sem er dótturfélag Símans, hefur verið valinn í CCIE Advisory Counsil. Í þessu ráði sitja 25 manns frá öllum heiminum og er Ómar sá eini sem er frá Norðurlöndunum og einn af fimm frá Evrópu.

Tæknifyrirtækið Cisco er með alls kyns prófgráður og CCIE er efsta gráðan í því. Þeir ákváðu að reyna að fá í lið með sér aðila á markaðnum til þess að þróa menntunarstefnuna og CCIE-gráðuna og þannig varð ráðgjafaráðið til.

Ómar segist hafa fengið áskorun um að sækja um og ákveðið að bregðast við því. „Ég bjóst nú ekkert við því að þetta myndi gerast. En ég sótti um og mér til mikillar furðu þá buðu þeir mér að taka þátt í þessari nefnd,“ segir Ómar.

Ómar segir að tilgangur ráðsins sé að tryggja áframhaldandi virði þessarar gráðu og einnig að þróa hana í þá átt sem hjálpar markaðnum. Hann segir að það sé mikill heiður að fá að vera með í þessu starfi.

„Sérstaklega sem Íslendingur þar sem markaðurinn okkar er mjög lítill, en við höfum alltaf verið mjög framarlega í tækninni og verið að gera hluti sem að fáir aðrir eru að gera. Og það hefur komið fyrir að á stórum ráðstefnum hefur verið minnst sérstaklega á það sem við höfum verið að gera á Íslandi,“ segir Ómar.

Ómar segir að Sensa hafi verið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík þar sem mikil vöntun hafi verið á þekkingu á þessu sviði inni í skólunum en á sama tíma aukist eftirspurnin eftir þessari þekkingu úti á markaðnum. Segja megi að eitt helsta áhyggjuefni þessara stóru tækniframleiðenda sé skortur á hæfu tæknifólki og þess vegna sé Cisco að taka þessa hluti svona alvarlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×