Sport

Valgerður vann sinn fyrsta atvinnumannabardaga | Átta í röð hjá Kolbeini

Kolbeinn og Valgerður.
Kolbeinn og Valgerður. Mynd/Aðsend
Kolbeinn Kristinsson og Valgerður Guðsteinsdóttir unnu bæði sína bardaga á hnefaleikakeppninni Rising Stars í Stokkhólmi í gærkvöld.

Líkt og Vísir fjallaði um fyrr í vikunni var þetta fyrsti bardagi Valgerðar í atvinnumannaflokki en Kolbeinn rotaði enn einn andstæðinginn fyrir áttunda sigrinum.

Valgerður barðist í fyrsta bardaga dagsins gegn heimakonunni Angelique Hernandez og mátti ekki sjá á henni að hún væri að berjast í fyrsta skiptið í atvinnumannaflokki.

Tókst henni að slá andstæðing sinn í jörðina strax í fyrstu lotu og stýrði hún bardaganum allan tímann. Lauk bardaganum með dómaraúrskurði þar sem allir dómararnir voru á einu máli.

„Ég var búin að fara yfir þessa stund svo oft í huganum á mér að þegar ég steig í hringinn var þetta allt mjög kunnuglegt. Það var smá stress en ég nýtti mér það til hins góða og það gaf mér auka orku. Ég reyndi að boxa minn bardaga og ég fann að ég var með stjórnina. Það er frábært að vera búin að stíga þetta skref og ég bíð spennt eftir næsta bardaga,“ sagði Valgerður í fréttatilkynningu.

Kolbeinn barðist í þriðja bardaga kvöldsins en Kolbeinn nýtti sér vel strax frá fyrstu mínútu að hann var töluvert stærri og með lengri arma.

Kolbeinn sýndi yfirburði sína í fyrstu lotu með ítrekuðum vinstri stungum en í annarri lotu gerði skrokkhögg Kolbeins útslagið. Dómarinn dæmdi Kolbeini sigurinn samkvæmt tæknilegu rothöggi (e. TKO).

Kolbeinn er því enn ósigraður eftir átta atvinnubardaga á ferlinum en hann var að vonum sáttur eftir bardagann.

„Ég fann það strax að ég þurfti ekki að flýta mér eða gefa á mér tækifæri. Ég náði að lenda hverri stungunni á fætur annarri í fyrstu lotu eins og ég lagði upp með fyrir bardagann með þjálfurunum,“ sagði Kolbeinn í fréttatilkynningu.

Box

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×