Viðskipti innlent

Valgeir ráðinn forstjóri Skeljungs

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Valgeir Matthías Baldursson.
Valgeir Matthías Baldursson.
Stjórn Skeljungs hefur gengið frá ráðningu Valgeirs Matthías Baldurssonar, framkvæmdastjóra neytendasviðs félagsins, í stöðu forstjóra.

Valgeir hefur starfað hjá Skeljungi í fimm ár, fyrst sem fjármálastjóri félagsins en síðustu tvö árin á neytendasviði.  Valgeir hefur viðamikla reynslu úr íslensku viðskiptalífi. Hann hefur meðal annars gegnt stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs SPRON, ráðgjafa hjá KPMG og verið meðeigandi og framkvæmdastjóri Álits ehf. að því er segir í tilkynningu frá Skeljuni.

Valgeir tekur við starfi forstjóra félagsins þann 9. maí næstkomandi, en fram til þess tíma mun Einar Örn Ólafsson, fráfarandi forstjóri, gegna stöðu sinni áfram. Einar Örn mun svo starfa áfram hjá Skeljungi til 30. maí og sinna tilfallandi verkefnum fyrir félagið eftir það.

„Við erum afar ánægð með að hafa fengið Valgeir til að taka að sér verkefni forstjóra Skeljungs. Bæði þekkir hann félagið ákaflega vel og þá hefur hann náð góðum árangri í þeim fjölbreyttu verkefnum sem hann hefur sinnt hjá Skeljungi. Við bindum því miklar vonir við að Skeljungur muni eflast enn frekar undir hans stjórn,“ segir Jón Diðrik Jónsson, stjórnarformaður Skeljungs.

Valgeir nam viðskipta- og stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og lauk MBA gráðu frá Háskólann í Reykjavík 2007. Valgeir er kvæntur Vilborgu Eddu Torfadóttur og eiga þau tvær dætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×