Golf

Valdís Þóra yfirveguð: Slakaði á í Candy Crush og las bækur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Mynd/Golfsamband Íslands
Valdís Þóra Jónsdóttir kórónaði frábært ár fyrir íslenska kylfinga með því að tryggja sér í dag þátttökurétt á Evrópumótaröðinni í golfi.

Það gerði hún er hún hafnaði í öðru sæti á lokaúrtökumótinu sem fór fram í Marokkó í dag. Fjölmargir kylfingar sækjast eftir því að komast á mótaröðina ár hvert en Valdís Þóra spilaði frábært golf allt mótið og var á alls fimmtán höggum undir pari.

„Mér líður bara ágætlega,“ sagði róleg og yfirveguð Valdís Þóra þegar Vísir náði tali af henni í dag. „Ég er bara fersk,“ bætti hún við í léttum dúr.

„Þetta var bara gaman. Ég er þreytt og hlakka til að komast heim til mín og fá mér lúr,“ segir hún.

Aldrei á jafn lágu skori

„En þetta var mjög skemmtilegt. Spilamennskan var góð og kannski sú besta sem ég hef náð hingað til. Þetta hjálpar mér mikið vel og sýnir að ég get náð jafn lágu skori og ég gerði á þessu móti. Ég hef aldrei verið á svona lágu skori áður.“

Þetta var í fjórða sinn sem hún tekur þátt í úrtökumótaröðinni og gætti hún þess sérstaklega að vera róleg og yfirveguð í kringum mótið. Það bar árangur því hún spilaði sífellt betur eftir því sem leið á mótið.

„Líklega eru æfingarnar mínar eftir alla hringina að skila sér. Ég passaði mig á því að gera mínar jafnvægisæfingar og halda tempói. Ég fór yfir púttin og sveifluna með þjálfaranum mínum, Karli Ómari, og talaði við Hlyn Geir Hjartarson, þjálfara minn heima á Íslandi, eftir hvern hring um hvað hefði mátt betur fara.“

„Svo hélt ég mér frá samfélagsmiðlum og spilaði Candy Crush. Ég las bækur og reyndi að láta tímann líða.“

Sækir um öll mót

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, sem er nú komin inn á bandarísku LPGA-mótaröðina, keppti á Evrópumótaröðinni á nýliðnu tímabili en fékk aðeins keppnisrétt á sex mótum.

„Það verður að koma í ljós hvað ég kemst inn á mörg mót. Ég mun sækja um að komast inn á öll og vona svo það besta,“ segir hún en það mun þó hjálpa til að hún varð í öðru sæti á úrtökumótinu. Það fleytir henni ofarlega á biðlistum fyrir mót.

En næst á dagskrá er að koma heim til Íslands og halda jól. „Ég ætla bara að njóta jólanna með fjölskyldu og vinum. Það verða svo nýliðabúðir á Spáni í janúar og þar fæ ég að vita meira um næstu skref mín.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×