Golf

Valdís Þóra og Ragnhildur efstar eftir fyrsta dag

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Valdís Þóra.
Valdís Þóra. Mynd/GSÍmyndir.net
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni og Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbb Reykjavíkur eru efstar eftir fyrsta dag Íslandsmótsins í höggleik sem fer fram um helgina.

Báðar byrjuðu þær illa og fengu tvöfaldan skolla á fyrstu holu dagsins og því fylgdu þrír skollar á fyrri níu holum vallarins. Valdís náði að krækja í fugl á fjórðu og Ragnhildur á þeirri áttundu og voru þær á fjórum höggum yfir pari eftir níu holur.

Leikur þeirra beggja lagaðist á seinni og léku þær seinni níu holur dagsins á pari. Ragnhildur nældi í tvo fugla og tvo skolla en Valdís í einn fugl og einn skolla.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Stefanía Kristín Valgeirsdóttir koma næstar á fimm höggum yfir pari en þær fengu báðar tvo fugla í dag og sjö skolla.

Sunna Víðisdóttir, ríkjandi Íslandsmeistari, átti í miklum erfiðleikum í dag og náði sér ekki á strik. Hún lék á fjórum höggum yfir pari fyrri níu og fimm höggum yfir pari á seinni níu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×