Golf

Valdís Þóra komst ekki áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. mynd/let/tristan jones
Valdís Þóra Jónsdóttir var ekki í hópi þeirra 35 kylfinga sem fá að spila á fjórða og síðasta keppnisdegi Oates Vic Open í Ástralíu, fyrsta móti hennar á Evrópumótaröðinni í golfi.

Hún lék á einu höggi yfir pari vallarins í nótt og hafnaði á einu höggi undir pari samtals í 51. sæti.

Valdís Þóra komst í gegnum niðurskurðinn eftir tvo keppnisdaga en aftur var skorið niður eftir þriðja daginn þar sem aðeins 35 efstu komust áfram.

Engu að síður er niðurstaðan góð fyrir Valdísi Þóru sem er að keppa á sínu fyrsta móti eftir að hafa tryggt sér þátttökuréttinn á Evrópumótaröðinni. Ljóst er að með árangrinum er hún komin á peninga- og stigalista Evrópumótaraðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×