Golf

Valdís Þóra í aðgerð og verður frá keppni næstu vikurnar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. vísir/gva
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, verður frá keppni næstu vikurnar vegna aðgerðar á þumalfingri.

Valdís Þóra, sem varð Íslandsmeistari í höggleik 2009 og aftur 2012, hefur glímt við meiðsli í þumalfingri undanfarin misseri og hafa þau háð henni á æfingum og í keppni. Þetta kemur fram á Golf.is.

Eftir úrtökumótið fyrir LET-Evrópumótaröðina í desember var ákvörðun tekin um að ekki væri hægt að bíða með aðgerðina lengur.

Valdís Þóra, leikur á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, LET Access, og mun hún hefja leik á þeirri mótaröð í apríl.

„Síðastliðin tæp tvö ár hef ég fundið mikið til í vinstri þumlinum af og til og í september kom undarlegur smellur í þumalinn þegar eg var að æfa á Spáni sem gerði mér erfitt með að halda á kylfunni vegna sársauka,“ segir Valdís Þóra um meiðslin í ítarlegri færslu á Facebook sem má lesa í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×