Golf

Valdís Þóra: Nóg af fuglum eftir

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir
Valdís Þóra Jónsdóttir
Valdís Þóra Jónsdóttir er í toppbaráttunni á Ladies Classic Bonville mótinu í Ástralíu sem er hluti af Evrópumótaröðinni.

„Ég er ánægð að ég hafi ekki tapað höggum fyrir vellinum, en nokkrar lélegar ákvarðanir sem kostuðu lélega skolla en heilt yfir er ég ágætlega ánægð,“ sagði Valdís Þóra eftir þriðja hringinn.

Hún spilaði hringinn í nótt á pari vallarins og er í 3.-6. sæti, samtals á fimm höggum undir pari. Það eru hins vegar sex högg í Celine Boutier í efsta sætinu svo Valdís þarf að ná frábærum hring á lokadeginum ætli hún að krækja í toppsætið.

„Það er alveg hægt að ná góðu skori. Þetta var svolítið erfitt þegar það var hellidemba, en það er ennþá hellingur af fuglum úti fyrir mig.“

„Ég bara verð þolinmóð á morgun og held áfram að koma mér í tækifæri,“ sagði Valdís Þóra Jónsdóttir.

Lokahringurinn verður spilaður næstu nótt og hefst útsending frá mótinu klukkan 02:00 á Golfstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×