Fótbolti

Valderrama: Real Madrid er ekki of stórt félag fyrir James

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Carlos Valderrama á hörkuspretti með Bandaríkjamanninn John Harkes í eftirdragi á HM 1994.
Carlos Valderrama á hörkuspretti með Bandaríkjamanninn John Harkes í eftirdragi á HM 1994. vísir/getty
James Rodríguez, 22 ára gamall Kólumbíumaður, sló í gegn á HM og er enn markahæstur þó liðið hans hafi verið slegið úr keppni af Brasilíu í átta liða úrslitum keppninnar.

James heillaði heimsbyggðina í Brasilíu og skoraði sex mörk, en honum tókst að skora í öllum fimm leikjum Kólumbíu á mótinu.

Carlos Valderrama, hinn hárprúði landsliðsmaður Kólumbíu á árum áður, er mjög hrifinn af hæfileikum samlanda síns og vonar að hann spili í spænsku 1. deildinni í framtíðinni.

„Það er lítið sem ég get bætt við um frammistöðu hans á HM,“ segir Valderrama í viðtali við spænska íþróttablaðið Marca um Rodríguez sem franska félagið AS Monaco keypti á 35 milljónir evra síðasta sumar.

„Þeir sem efuðust um gæði James sáu hvað í honum býr. Ég efaðist aldrei. Hann nýtti sér þennan stærsta glugga fótboltaheimsins sem er heimsmeistarakeppnin til að sýna sig.“

James verður í eldlínunni með Monaco í Meistaradeildinni ef ekkert breytist í sumar.vísir/getty
„Hann spilar best sem „tía“ eins og ég. En þjálfarar í dag eru lítið að nota hreinræktaðar tíur. Þess vegna vil ég fá hann út á kantinn; þar verður hann frábær. Ef hann spilar ásamt hraðari leikmönnum verður hann enn betri því þá getur hann matað þá með stoðsendingum,“ segir Valderrama.

Stærstu félög heims eru nú öll orðuð við James eftir heimsmeistarakeppnina en ljóst er að hann mun kosta sitt. Real Madrid er sagt bera víurnar í Kólumbíumanninn.

„Ekki einu sinni Real Madrid er of stórt fyrir James. Sjáið bara hvernig hann spilaði á HM, ekki nema 22 ára gamall. Hann sýndi að hann getur spilað með hvaða liði sem er. James er frábær leikmaður og frábærir leikmenn kosta sitt. En það verður að horfa til þess að hann er fjárfesting upp á 8-10 ár,“ segir Carlos Valderrama.


Tengdar fréttir

David Luiz og Dani Alves hugguðu James í leikslok - myndir

Kólumbíumaðurinn James Rodríguez kemur örugglega til greina sem besti leikmaður HM í Brasilíu þrátt fyrir að hann hafi spilað sinn síðasta leik í átta liða úrslitunum í 1-2 tapi á móti Brasilíu í kvöld.

James tapaði í kvöld en komst í fámennan HM-hóp

Kólumbíumaðurinn James Rodríguez var í kvöld aðeins sjötti leikmaðurinn í sögu HM í fótbolta sem nær að skora sex mörk í fyrstu fimm leikjum sínum á HM í fótbolta og aðeins Pele var yngri þegar hann skoraði sitt sjötta HM-mark.

James leyfði sér að dreyma

James Rodriguez hefur slegið í gegn á HM í Brasilíu og verið í aðalhlutverki í mögnuðu kólumbísku landsliði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×