Lífið

Vala Matt selur glæsilega íbúð í Skuggahverfinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega smekklegt heima hjá Völu
Virkilega smekklegt heima hjá Völu vísir
Sjónvarpskonan Vala Matt hefur sett íbúð sína við Klapparstíg til sölu en hún er staðsett á efstu hæð á besta stað í borginni.

Fasteignasalan Lind er með eignina á söluskrá og er ásett verð 42,9 milljónir króna.

Um er að ræða stórglæsilega penthouse-íbúð á fimmtu og sjöttu hæð. Á efri hæðinni er tæplega 6 metra lofthæð og alveg einstakir risastórir þakgluggar sem ná frá gólfi og uppí efstu hæð þakloftsins.

Stofan og borðstofan er opið og bjart rými með náttúrusteini á gólfi, útgengt út á svalir með sjávarútsýni til norðurs.

Innréttað hefur verið 4 fermetra svefnloft sem nýtist einnig sem vinnurými með fallegum þakglugga.

Hér að neðan má sjá myndir innan úr eigninni sem og innslag sem Sindri Sindrason gerði með Völu Matt á sínum tíma í þáttunum Heimsókn á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×