Leikmaður Grindavíkur skoraði í fyrsta sigri Portúgals á stórmóti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Carolina Mendes kemur boltanum framhjá Gemmu Fay, markverði Skotlands og Stjörnunnar.
Carolina Mendes kemur boltanum framhjá Gemmu Fay, markverði Skotlands og Stjörnunnar. vísir/getty
Portúgal á enn möguleika á að komast áfram í 8-liða úrslit á EM kvenna í fótbolta eftir 1-2 sigur á Skotlandi í Rotterdam í dag. Þetta var fyrsti sigur portúgalska kvennalandsliðsins á stórmóti frá upphafi.

Leikurinn í dag var í C-riðli en síðar í kvöld mætast England og Spánn í sama riðli. Portúgal er með þrjú stig í 3. sæti riðilsins, jafn mörg og England og Spánn.

Carolina Mendes, leikmaður Grindavíkur í Pepsi-deild kvenna, kom Portúgölum yfir á 27. mínútu. Þetta var fyrsta mark Portúgals á stórmóti frá upphafi.

Á 68. mínútu jafnaði Erin Cuthbert metin, fjórtán mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Það var svo annar varamaður, Ana Leite, sem skoraði sigurmark Portúgala á 72. mínútu. Lokatölur 1-2, Portúgal í vil.

Portúgal mætir Englandi í lokaumferð riðlakeppninnar á fimmtudaginn á meðan Skotland mætir Spáni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira