Úkraínumenn á toppi riðilsins

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Úr fyrri leik liðanna í Tyrklandi.
Úr fyrri leik liðanna í Tyrklandi. vísir/getty
Úkraínumenn eru á toppi I-riðils eftir 2-0 sigur á Tyrklandi í kvöld. Króatía á hins vegar leik til góða á morgun þar sem þeir geta endurhemt toppsætið.

Íslendingar vonuðust eftir jafntefli þessara liða eftir tapið gegn Finnum fyrr í dag. Andriy Yarmolenko, sóknarmaður þýska liðsins Dortmund, var hins vegar ekki á því að gera Íslendingum neina greiða. Hann skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik, á 18. og 42. mínútu, og tryggði liði sínu sigurinn í dag. 

Næsti leikur Úkraínumanna í keppninni er á Laugardalsvelli á þriðjudaginn, 5. september, þar sem Íslendingar ætla sér að komast aftur upp fyrir Úkraínu í riðlinum. 



Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira