Frakkar og Danir náðu markmiðum sínum með markalausu jafntefli

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Olivier Giroud og Simon Kjær.
Olivier Giroud og Simon Kjær. Vísir/EPA
Frakkland og Danmörk tryggðu sér tvö efstu sætin í C-riðli eftir að hafagert markalaust jafntefli í toppslag riðilsins. Þetta var fyrsta markalausa jafnteflið á HM í Rússlandi.

Frakkar vinna riðilinn og mæta liðinu sem endar í öðru sæti í íslenska riðlinum. Danir taka annað sætið og mæta því sigurvegara íslenska riðilsins sem er væntanlega lið Króata.

Fyrri hálfleikurinn bauð ekki upp á mikið en seinni hálfleikur var hrein hörmung þar sem hvorugt liðið sýndi mikinn vilja til að skora mark og tryggja sér sigurinn.

Í fyrri hálfleiknum bárust fréttir af því að Perú væri komið yfir á móti Ástralíu og því staða Dana orðin enn betri. Eftir að Perú komst í 2-0 þá varð það jafnframt orðið ljóst að Ástralir ætluðu ekkert að blanda sér í baráttuna um annað sætið riðilsins.





Danir lögðu höfuðáherslu á að verjast, spiluðu aftarlega á vellinum og treystu á skyndisóknir. Danir eru enn taplausir á mótinu en þeir eru ekki búnir að spila skemmtilegan fótbolta á heimsmeistaramótinu.

Frakkar voru meira með boltann en sóknarleikur liðsins var einhæfur og hugmyndasnauður. Frakkar vissu að þeir myndu vinna riðilinn næðu þeir í stig og þeir voru ekki að eyða of mikillu orku í leiknum.

Síðari hálfleikurinn rann út í sandinn og seinni hluti hans var næstum því líflaus þar sem leikmenn liðanna voru að dútla með boltann. Það dugði lítið þótt óþolinmóðir áhorfendur hafi púað á rólegheitin.



Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira