Skoðun

Vaknaðu það er kominn nýr dagur!

Eva Magnúsdóttir skrifar
Menntamálaráðherra fer nú um landið og kynnir hvítbók sína sem sett var fram í sumar. Framsetning Illuga á gögnum opnaði augu mín enn frekar fyrir því hvað við stöndum frammi fyrir mikilli áskorun sem er menntun barna og ungmenna. Hvítbókinni er ætlað að vera grundvöllur að umræðu og samráði við alla þá sem hag hafa af og áhuga á eflingu menntunar í landinu. Í hvítbókinni er lagt mat á stöðu okkar í dag og er þá stuðst við gögn úr niðurstöðum úr PISA-könnunum. Sett eru fram tvö meginmarkmið: annars vegar að auka lestrarfærni grunnskólanema og hins vegar að auka hlutfall nemenda sem ljúka námi úr framhaldsskóla á tilsettum tíma. Ég var viðstödd einn slíkan fund í Mosfellsbæ og vildi með þessari grein m.a. þakka ráðherra fyrir einstaklega vel framsettan fund. Fundurinn var opinn öllum og var samtal og hvatning ráðherrans til helstu forystumanna skólamála á Íslandi og allra þeirra sem áhuga hafa á menntun í landinu. Þessi aðferð, að koma inn í sveitarfélögin til þess að hvetja skólafólk til góðra verka svo þróuninni verði snúið við, finnst mér hreint frábær og mættu margir læra af ráðherranum að virkja baklandið sitt.

Lestrarhæfni hefur forspárgildi

PISA-könnun sýnir fram á að gera má betur varðandi læsi ungs fólks á Íslandi, sérstaklega drengja. Bágur lesskilningur getur haft afar neikvæð áhrif á námsframvindu og þar með atvinnutækifæri þeirra síðar meir. Samkvæmt PISA-könnuninni hefur hlutfall 15 ára nemenda sem ekki getur lesið sér til gagns hækkað úr 15% árið 2000 í 21% árið 2012. Staðan er verri meðal drengja þar sem þriðjungur þeirra á í erfiðleikum með lestur. Þessar staðreyndir hvetja mann til umhugsunar og hvítbókin er því sannarlega þarft innlegg og hvatning til okkar um betrumbætur í skólakerfinu.

Ráðherra benti á töpuð tækifæri þeirra sem ekki ná tökum á læsi að lesa og nefndi einnig tapaðar framtíðartekjur sem er staðreynd þegar fólk flosnar upp úr námi. Ísland sker sig úr hópi helstu samanburðarlanda í því hversu fáir ljúka námi úr framhaldsskóla á tilsettum tíma en innan við helmingur íslenskra ungmenna sem innritast í framhaldsskóla lýkur námi á skilgreindum námstíma. Jafnframt sker Ísland sig úr varðandi upphaf háskólagöngu en á Íslandi hefja nemendur að jafnaði háskólagöngu um tvítugt á meðan þeir byrja 18 eða 19 ára í OECD-löndunum. Á Íslandi er hlutfall fullorðinna sem ekki hefur lokið framhaldsskóla um 30% og er það hærra en í nágrannalöndunum. Hugsanlega getur stytting framhaldsskólans haft á þetta áhrif.

Tökum höndum saman

Þetta eru stórar og miklar áskoranir og verkefni og eins og öll stór verkefni kalla þau á að við vöknum og tökum öll höndum saman við lausn þeirra. Til þess að íslensk ungmenni hafi sömu tækifæri og sömu tekjumöguleika og jafnaldrar þeirra erlendis þá þurfa foreldrar og skólasamfélagið að taka jafnan þátt í því lestrarátaki sem nú er að hefjast í öllum grunnskólum landsins. Það hlýtur að vera grunnurinn að betra samfélagi.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×