Innlent

Vætusamt á Menningarnótt

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá Menningarnótt í fyrra.
Frá Menningarnótt í fyrra. Vísir/Daníel
Gestir Menningarnætur í Reykjavík mega eiga von á nokkurri vætu seint um laugardagskvöldið. Útlit er þó fyrir þurrt veður framan af degi og ættu því þátttakendur Reykjavíkurmaraþonsins að sleppa nokkuð vel.

Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands verður einnig nokkur gola um daginn. Útlit er fyrir nokkuð sólríkt veður um land allt á morgun, allavega á Suður- og Vesturlandi en jafnvel norðan og austan til líka.

Á föstudag tekur að skýja og útlit er fyrir að í næstu viku verði nokkuð blautt suð- og vestanlands en að hlýna taki á Norður- og Austurlandi þar sem svalt hefur verið upp á síðkastið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×