Viðskipti innlent

Væri starfsmaður á kassa í búð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Karl Georg Sigurbjörnsson og Elmar Svavarsson.
Karl Georg Sigurbjörnsson og Elmar Svavarsson.
„Við áfrýjum klárlega. Við teljum að dómurinn sé í villu með staðreyndir um stöðu og hlutverk verðbréfamiðlara,“ segir Karl Georg Sigurbjörnsson, lögmaður Elmars Svavarssonar.

Elmar var í Héraðsdómi Reykjavíkurdæmdur í fimm ára fangelsi ásamt þeim Birki Kristinssyni og Jóhannesi Baldurssyni. Allir störfuðu þeir saman hjá Glitni en Elmar starfaði sem verðbréfamiðlari. Lögmenn allra fjögurra hafa nú staðfest við Vísi að dómnum verði áfrýjað.

„Hann er í engri stöðu til að taka ákvörðun um eitt eða neitt,“ segir Karl Georg og segir verðbréfamiðlara hér á landi þurfa að hafa áhyggjur af stöðu sinni eftir niðurstöðu dómsins. Elmar sé lágsettur starfsmaður en sakfelldur með framkvæmdastjórum.

„Ég myndi ráðleggja verðbréfamiðlara að leita sér að öðru starfi.“

Væri starfsmaður á kassa í búð

„Ef hann væri að vinna í búð væri hann bara starfsmaður á kassa,“ segir Karl Georg. Miðlari taki aðeins vöruna og flytji á milli aðila. Ekki sé hægt að gera hann ábyrgan fyrir láninu eins og dómurinn í geri. Honum sé gefið annað hlutverk innan bankans en hann hafi.

Karl Georg segir dóminn ekki hafa tekið til greina skýringar lögmanna dæmdu að einu né neinu leyti. Ákærunni hafi í raun bara verið snúið í dóm að hans mati.

„Birkir Kristinsson er hlutdeildarmaður í brotinu og hann fær sömu refsingu,“ segir Karl Georg ósáttur. Augljóst mál sé að dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar.

Dóminn í heild sinni má lesa hér.


Tengdar fréttir

Áfrýjun á leiðinni til ríkissaksóknara

Lögmaður Birkis Kristinssonar segir að skjólstæðingur sinn hafi ekki átt von á öðru en að málinu yrði vísað frá eða hann yrði sýknaður.

Fjórir ákærðir fyrir lán til Birkis Kristinssonar

Sérstakur saksóknari hefur ákært Birki Kristinsson og þrjá aðra fyrrverandi starfsmenn Glitnis fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og fleira. Ástæðan er 3,8 milljarða lán til félags í eigu Birkis til kaupa á bréfum í bankanum.

Birkir samdi við slitastjórn Glitnis

Birkir Kristinsson samdi við slitastjórn Glitnis um að endurgreiða tugmilljóna hagnað sinn af hlutabréfaeign í bankanum, sem saksóknari telur ólögmætan. Honum hefur því ekki verið stefnt til greiðslu skaðabóta eins og tveimur öðrum sakborningum.

Birkir Kristins neitar sök

Er ásamt þremur öðrum fyrrverandi starfsmönnum Glitnis ákærður fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga.

Ákærðu enn við störf hjá Íslandsbanka

Þeir Birkir Kristinsson og Elmar Svavarsson, starfa báðir enn hjá Íslandsbanka, þrátt fyrir að þeir hafi verið ákærðir ásamt tveimur öðrum mönnum, fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga í tengslum við 3,8 milljarða króna lánveitingu Glitnis til félags í eigu Birkis.

Lárus og Guðmundur segjast ekki hafa samþykkt lánið

Birkir Kristinsson tók 3,8 milljarða lán til að kaupa hlutabréf í Glitni, svo að bankinn gæti gert upp framvirkan samning við Gnúp, sem Birkir átti 28% í. Lárus Welding segist ekki hafa komið nálægt lánveitingunni.

Birkir og Elmar sendir í leyfi

Þeir Birkir Kristinsson og Elmar Svavarsson hafa verið settir í leyfi frá störfum sínum í Íslandsbanka samkvæmt heimildum fréttastofu.

Birkir dæmdur í fimm ára fangelsi

Birkir Kristinsson, Jóhannes Baldursson og Elmari Svavarssyni voru dæmdir í fimm ára fangelsi og Magnús Arnar Arngrímsson í fjögurra ára fangelsi.

Dómur fellur í máli Birkis og félaga

Fjórmenningarnir eru ákærðir fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga í tengslum við 3,8 milljarða lánveitingu Glitnis til félags í eigu Birkis Kristinssonar í nóvember 2007.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×