Innlent

Vændi og fíkniefnaneysla í fangelsunum sem og annars staðar í samfélaginu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Páll Winkel fangelsismálastjóri.
Páll Winkel fangelsismálastjóri. vísir/andri marinó

Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir að líkt og annars staðar í samfélaginu þekkist fíkniefnaneysla og vændi innan veggja fangelsanna.

Dæmi sem tekin séu í umsögn stofnunarinnar um frumvarp um fullnustu refsinga, um ungar stúlkur sem komið hafa dauðhræddar í heimsókn á Litla-Hraun, séu einfaldlega sett fram til að gera löggjafarvaldinu grein fyrir að heimsóknir í fangelsið hafi verið misnotaðar. Setja þurfi skýrari reglur til að koma í veg fyrir það.

Í umsögninni er sagt frá stúlkum sem komið hafa í heimsókn á Litla-Hraun eftir að fangar settu þær á heimsóknarlistann sinn. Þegar þær hafi svo mætt í fangelsið hafi komið í ljós að þær þekktu ekki fangana í sjón sem þær voru komnar til að heimsækja.

Aðspurður hvort að fangar geti sett hvern sem er á heimsóknarlistann sinn segir Páll:

„Fangar eiga rétt á heimsóknum fjölskyldu og vina og ég vil undirstrika það í langflestum tilvika er þetta bara gott mál og mikilvægur þáttur í því að draga úr einangrun fanga. Við hins vegar höfum takmarkaðar heimildir til þess að bakgrunnsskoða eða fara í gegnum ferils hvers og eins heimsóknaraðila eða hvað þá skoða hvort að um raunverulegt samband er að ræða. En eins og staðan er í dag þá hafa þessi tilvik komið upp. Já, fangi getur óskað eftir heimsóknum vina og fjölskyldumeðlima og fær það í flestum tilvikum.“

Það sé því undantekning að verið sé að misnota heimsóknirnar í fangelsin. Hins vegar viti fangelsismálayfirvöld af því að fíkniefni komi með gestum.

„Það eru dæmi um það að sérstaklega stúlkur hafi komið þarna inn og verið með mjög lítil tengsl við fanga.“

Eru þær þá gagngert að koma til að reyna að smygla fíkniefnum inn eða til að selja sig eða eitthvað slíkt?

„Eina sem ég get sagt um að þetta sem þú ert að nefna á sér stað alls staðar í samfélaginu og líka í fangelsunum.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×