Skoðun

Útrýmum undantekningunum

Einar Magnús Magnússon skrifar
Það er ástæða til að hrósa íslenskum ökumönnum en einhverra hluta vegna hefur of lítið farið fyrir þeirri umræðu. Okkur hættir til að fjalla eingöngu um það sem telja má sem alvarlegt frávik frá þeirri almennu reglu að við séum bara nokkuð góð og vel flest til fyrirmyndar.

Slysum og umferðarlagabrotum meðal ungra ökumanna hefur stórlega fækkað á undanförnum árum. Nú kann einhver að segja að það sé vegna þess að fyrir nokkrum árum var sett í lög akstursbann á þá nýliða í umferðinni sem brjóta alvarlega af sér og að óttinn við það sé þess valdur að ungir ökumenn hagi sér nú af meiri skynsemi. En vitanlega eiga þeir hrósið skilið því skynsemi þeirra og dómgreind segir að áhættuhegðun og óábyrgð hegðun í umferðinni geti haft áþreifanlegar og alvarlegar afleiðingar. Mörgum þeirra reynist erfiðara að ímynda sér örkuml og dauða sem afleiðingu gjörða sinna en slíkt virðist reyndar vera algengt meðal ungs fólks og þá sérstaklega ungra karlmanna sem flestir eru haldnir þeim meðfædda misskilningi að þeir sé ódauðlegir.

Áhættuhegðun

Hvernig er í raun hægt að segja annað en að ökumenn séu almennt til fyrirmyndar þegar tugir þúsunda ökumanna deila með sér strætum og götum á degi hverjum við oft erfiðar og þröngar aðstæður og það telst til undantekninga að alvarleg slys hljótist af? Undantekningarnar frá þessari reglu eru hins vegar oft svo alvarlegar að þær krefjast þess að unnið sé hörðum höndum að eftirliti, forvörnum og fræðslu þannig að sú áhættuhegðun sem leiðir af sér slíkar undantekningar sé upprætt.

Það er vissulega erfitt fyrir þann sem hefur þurft að kljást við gjörbreytt líf og erfiða lífsbaráttu af völdum umferðarslyss að hrósa okkur fyrir það hve góðir ökumenn við séum. Það er óásættanlega stór hópur sem telja má til fórnarlamba umferðarslysa.

Um leið og við hjá Umferðarstofu viljum óska landsmönnum gleðilegrar hátíðar þá viljum við hvetja landsmenn til að halda sig frá undantekningunum á komandi ári og árum. Leiðum hugann að þeim sem eiga um sárt að binda og tökum undir bæn þeirra um að ekki verði fleiri undantekningar frá þeirri reglu að við komumst heil heim.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×