Innlent

Útilokun foreldra í keppnisferðum mögulega brot á jafnréttislögum

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Dæmi eru um félög sem leyfðu ekki feðrum að vera næturverðir eða liðsstjórar á pæjumótinu árið 2013 vegna reglna foreldrafélaga, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Dæmi eru um félög sem leyfðu ekki feðrum að vera næturverðir eða liðsstjórar á pæjumótinu árið 2013 vegna reglna foreldrafélaga, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Mynd/Óskar Pétur Friðriksson
Ekki er óalgengt að gerð sé krafa um að eingöngu mæður gisti með stúlkum í keppnisferðum íþróttafélaga. Ekki er jafn algengt að krafa sé gerð um að eingöngu feður gisti með drengjunum.

Þetta staðfesta íþróttafulltrúar, þjálfarar og fulltrúar í barna- og unglingaráðum íþróttafélaga sem Fréttablaðið ræddi við. Reglurnar eru settar af foreldrafélögunum enda eru börnin ætíð á ábyrgð foreldra á ferðalögunum, ekki þjálfara.

Í Val er þetta fyrirkomulag skráð regla í gæðahandbók félagsins. Eingöngu konur gista með stúlkum og eingöngu karlar með drengjum. Þessi regla er sett af barna- og unglingasviði félagsins. Guðmundur Breiðfjörð, formaður sviðsins, segir regluna setta í samráði við börn og foreldra.

„Það er mjög góð sátt um þessa reglu og við höfum engar áhyggjur af því að við séum að ýta til dæmis áhugasömum pöbbum frá. Þetta var gert til að skapa sátt og hefur gengið vel upp.“

Hjá KR hefur þetta fyrirkomulag verið rætt reglulega meðal foreldra en ekki verið sett sem viðmið í ferðum. „Þessi umræða er samt meiri stelpumegin en strákamegin,“ segir Rósa Hrönn Árnadóttir í barna- og unglingaráði KR. „Það er gott að eiga samtalið en við höfum aldrei farið út í að setja reglur. Enda eru þetta foreldrar í umönnunarhlutverki á mótunum og eðlilegt að pabbarnir sinni stelpunum sínum, og öfugt.“

Lögfræðingur hjá Jafnréttisstofu segir kynjaskiptingu í þessu umönnunarhlutverki foreldra geta verið brot á jafnréttislögum.

„Fortakslaus regla þar sem foreldri er útilokað frá þátttöku í íþróttaferðum barns síns á grundvelli kyns er að minnsta kosti á gráu svæði og líklega ekki í samræmi við meginreglur í lögum um að ekki megi mismuna fólki á grundvelli kyns,“ segir Ingibjörg Elíasdóttir lögfræðingur. „Til þess að þetta sé brot á lögum þyrfti að fallast á að það sé óhagstæðari meðferð í skilningi jafnréttislaga, að foreldri af öðru kyninu geti ekki farið með barni sínu og sinnt liðsstjórahlutverki eða gist með því.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. maí




Fleiri fréttir

Sjá meira


×