Skoðun

Útilokun

Heiðdís Dögg Eiríksdóttir skrifar
Ég lít í kringum mig og sé spennta foreldra með bros á vör og allir tilbúnir með myndavélarnar uppi. Þau eru að bíða eftir sýningunni hjá krökkunum sínum sem hafa æft sig í allan vetur. Þetta er sýning til fjáröflunar hjá 8. bekk fyrir skólaferðalag. Ég hef fylgst með undirbúningnum í gegnum strákinn minn, hann leikur aðalhlutverkið og loksins er komið að sýningunni.

Ég er döpur innst inni í hjarta mínu, ég reyni að láta ekki á því bera því ég vil ekki skyggja á þennan gleðilega dag. Ég fékk ekki táknmálstúlk því ekki var til nægt fjármagn til að borga táknmálstúlkunina. Þessi stund var undirbúin með góðum fyrirvara, var auglýst með metnaði hjá krökkunum en víst ekki rétti tíminn fyrir mig og ekki hægt að endurtaka þetta.

Þetta eru dæmi sem eru að gerast hjá íslenskum þjóðfélagsþegnum sem nota íslenskt táknmál (ÍTM) í sínu daglega lífi. Ekki má gleyma að þetta er líka fyrir þau sem ekki geta nýtt sér ÍTM en þurfa að eiga samskipti við okkur sem notum ÍTM. Við njótum ekki til fulls viðburða í lífi okkar, barnanna okkar, fjölskyldu og viðburða í kringum okkur þegar við fáum ekki táknmálstúlk sem gefur okkur öllum færi á betra aðgengi í samfélaginu. Þessi tími er glataður, við endurupplifum ekki þessi tímamót í lífi okkar og okkar nánustu. Það er sárt ef við fáum ekki að njóta augnabliksins til jafns við aðra þjóðfélagsþegna, við erum útilokuð.

Binda á okkur hendurnar

Stjórnvöld binda á okkur hendurnar og við getum ekki sinnt skyldum okkar sem foreldrar, húseigendur, skattgreiðendur, ættingjar og fleira. Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk segir: „Fatlað fólk á rétt á tjáskiptaleiðum að eigin vali eins og t.d. táknmálstúlkun til þess að geta tekið virkan þátt í samfélaginu.“ Íslenska ríkið veitir hins vegar of lítið fé til táknmálstúlkunar í daglegu lífi sem þýðir að íslenskum þjóðfélagsþegnum sem reiða sig á íslenskt táknmál er ekki tryggt aðgengi að táknmálstúlkun í daglegu lífi s.s. við atvinnu, í mannfögnuði, á námskeiðum og fleira.

Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) stendur fyrir undirskriftasöfnun þar sem allir 18 ára og eldri eru hvattir til að skora á stjórnvöld að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks á haustþingi 2015. Síðustu daga hafa birst myndbönd sem ÖBÍ hefur látið vinna og sýna þau raunverulegar aðstæður sem sumt fatlað fólk upplifir á Íslandi í dag. Ég vil hvetja þig til að skrifa undir áskorunina sem má finna á heimasíðu ÖBÍ, www.obi.is/askorun. Við ættum öll að geta skrifað undir mannréttindi fatlaðs fólks og stuðlað þannig að betra samfélagi fyrir alla!




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×