Innlent

Útilokar samstarf með Sjálfstæðisflokknum eftir kosningar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Helgi Hjörvar
Helgi Hjörvar Vísir/Ernir
Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar og frambjóðandi til formanns flokksins, segir stjórnmálaflokk ekki glata þremur af fjórum stuðningsmönnum sínum út af útliti eða persónum heldur vegna þess að hann hafi ekki þróað stefnumál sín og skipulag með nægilega trúverðugum hætti.

Samfylkingin mælist nú með afar lítið fylgi í skoðanakönnunum en í skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag mælist flokkurinn með 7,4 prósent fylgi.

„Meðal þess sem ég legg áherslu á er að við sköpum þann skýra valkost sem kjósendur eru að leita að með sem mestu samstarfi og helst kosningabandalagi stjórnarandstöðunnar fyrir næstu kosningar með áherslu á fá mál og stutt kjörtímabil. Ég held að það sé með mjög sterk ósk hjá fólki um að fá að vita hverjir ætla að starfa með hverjum að hverju en ekki að menn fari í eitthvað makk um það í bakherbergjum um það eftir kosningar,“ segir Helgi í samtali við Vísi og bætir við að verði hann kjörinn formaður Samfylkingarinnar útilokar hann samstarf með Sjálfstæðisflokknum eftir næstu kosningar.

Hann segir mjög mikilvægt að endurnýja í forystusveitinni.

„Þess vegna tilkynnti ég samhliða því þegar ég sagði frá formannsframboði mínu að ég myndi ekki sækjast eftir efsta sætinu í prófkjörinu í Reykjavík. Ég tel að í jafnaðarmannaflokki þurfi formaður ekki að vera bæði formaður og oddviti og eins til að hleypa fleirum að í þau verkefni. Ég held nefnilega að eitt af því sem við getum gert betur er að formaður flokksins hafi verið alltof mikið bundinn inni á Alþingi því árið 2016 verður pólitíkin ekki bara til á þingi heldur úti um allt samfélag.“

Aðspurður hvað honum þyki um hugmynd Magnúsar Orra Schram sem einnig er í framboði til formanns um að leggja Samfylkinguna niður og stofna nýjan flokk segir Helgi:

„Það má hugsa allt en ég tel að nýtt nafn eða fleiri nýir flokkar á vinstri vængnum muni ekki leysa neinn vanda. Mér finnst líka löngu tímbært að við í Samfylkingunni réttum úr okkur og séum stolt af þeim gríðarlega viðsnúningi sem hér náðist á síðasta kjörtímabili.“


Tengdar fréttir

VG bætir við sig tæpum sex prósentum

Tæplega 20 prósent myndu kjósa VG ef kosið yrði til þings núna. Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar eru stærstir og hafa rúmlega 30 prósenta fylgi hvor um sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×