Lífið

Útilegupeysan komin í hendur Bjarkar

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Hrefna prjónaði peysuna eftir eigin höfði og í þeim tilgangi að nota í útilegur.
Hrefna prjónaði peysuna eftir eigin höfði og í þeim tilgangi að nota í útilegur. Vísir/Ernir
„Þetta var nú svolítið fyndið. Ég prjónaði þessa peysu fyrir mörgum, mörgum árum síðan,“ segir prjónaáhugakonan Hrefna Einarsdóttir.

Hrefna rak heldur betur upp stór augu um árið þegar hún kom auga á Björk Guðmundsdóttur í peysu sem hún prjónaði einum þrjátíu árum áður, en þessu segir hún frá á Facebook nú fyrir stuttu.

Björk í peysunni sem Hrefna prjónaði.Vísir/GVA
„Ég notaði hana sem útilegupeysu því að hún nær alveg niður á miðja kálfa og er hlý og góð. Svo minnkaði þetta útilegu­stand á manni og þá var þessi peysa búin að liggja uppi í skáp hjá mér í mörg ár svo ég ákvað bara að taka af skarið og gefa hana í Rauða krossinn,“ segir Hrefna.

„Ég man ekki nákvæmar tímasetningar, en ég sá Björk í mótmælum í fréttunum og þá sá ég það að hún var komin í peysuna – hún hlýtur að hafa keypt hana í Rauða krossinum, það er eina skýringin sem ég kann á þessu.“

Dóttir Hrefnu tók nokkrar útilegur í peysunni góðu.
„Það er alveg svolítið mikið langt síðan ég prjónaði hana. Ætli það hafi ekki bara verið í kringum 1986, jafnvel 1988. Það er saga í þessari peysu – hún var tekin með í margar útilegur,“ segir Hrefna.

„Dóttir mín fékk hana líka lánaða í einhverjar útilegur, þannig að þessi peysa hefur fengið að fara víða.“

Hrefna segist sjálf hafa hannað peysuna sem óhætt er að segja að hafi verið á ferðalagi síðan.

„Ég hannaði hana bara sjálf, þetta er ekki eftir neinni uppskrift. Ég settist bara niður og prjónaði eina stóra og góða fyrir útilegu, það var markmiðið. Ég man ekki lengur hversu lengi ég var að prjóna þetta, það er orðið svolítið langt síðan, heil þrjátíu ár – þetta dofnar í minningunni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×