Viðskipti innlent

Útibú verða sameinuð

jón hákon halldórsson skrifar
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. fréttablaðið/Daníel
Útibú Landsbankans og þau sem áður heyrðu undir Sparisjóð Vestmannaeyja á Höfn og Selfossi verða sameinuð frá og með deginum í dag, mánudeginum 27. apríl.

Útibúin verða til að byrja með rekin í húsnæði Landsbankans á þessum stöðum, en að loknum lagfæringum á Höfn mun bankinn flytja starfsemi sína í húsnæði sparisjóðsins. Við sameiningu útibúa á Selfossi og Höfn hætta 6 starfsmenn.

Ákveðið hefur verið að reka áfram afgreiðslur á Breiðdalsvík og á Djúpavogi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×