Viðskipti innlent

Útibú Landsbankans og sparisjóðsins sameinuð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Landsbanki Íslands.
Landsbanki Íslands.
Útibú Landsbankans og þau sem áður heyrðu undir Sparisjóð Vestmannaeyja á Höfn og Selfossi verða sameinuð frá og með mánudeginum.

Útibúin verða til að byrja með rekin í húsnæði Landsbankans á þessum stöðum, en að loknum lagfæringum á Höfn mun bankinn flytja starfsemi sína í húsnæði sparisjóðsins. Húsnæði Landsbankans á Höfn verður þá selt. Þá hefur verið ákveðið að reka áfram afgreiðslur á Breiðdalsvík og á Djúpavogi og hefur sveitastjórnum þessara staða verið tilkynnt um það.

Við sameiningu útibúa á Selfossi og Höfn láta 6 starfsmenn af störfum. Í tilkynningu frá Landsbankanum segir að tveir þeirra hafi ekki óskað eftir áframhaldandi starfi í sameinuðu útibúi. Þá flyst einn starfsmaður á höfuðborgarsvæðið að eigin ósk og fær starf hjá bankanum þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×